top of page

Georg Douglas: Hringdans í bakgarðinum

508A4884.JPG

miðvikudagur, 28. janúar 2026

Georg Douglas: Hringdans í bakgarðinum

SÍM Gallery

Opnun: Laugardaginn 07. febrúar 14:00 - 16:00

07.02 - 03.03.2026

Sýningin er tileinkuð fegurð blómanna en bakgrunnur minn í vísindum og smásjárrannsóknum hefur kveikt hjá mér áhuga á að dýpka það sem við sjáum og þar með víkka sjónarsviðið. Á þessari sýningu sjáum við kunnuleg krónublöð, frævla, frævur og önnur einkenni blómma en líka aðra þætti sem eru ekki sýnilegir berum augum eins og prótín, frjókorn og DNA spírala. Og fegurðin dýpkar og verður jafnvel stórkostlegri á smásjár og á sameindastígi.

Litapalletan sem ég nota einkennist af litum blómanna sjálfra og ég legg mikla áherslu á að undirstrika þessa liti við mismunandi birtuskilyrði. Litir blómanna eru almennt bjartir og í smásjá geta óvæntar “tæknibrellur” þeirra komið í ljós. Til dæmis er sterkur litur sóleyjar framkallaður af ákveðnum litarefnum og lagi af lofti undir yfirborðinu sem endurkastar ljósinu eins og spegill. Mig langar að reyna að endurskapa þessar “tæknibrellur” blómanna.

Heimur blómanna felur í sér samlíf við önnur kerfi þar sem skordýr, sérstaklega býflugur, skipta höfðumáli. Býflugurnar afla sér nektar og dreifa um leið frjókornum og styðja þannig og efla líf blómanna. Býflugur eru því nauðsynlegar lífi á jörðinni og þær birtast beint eða óbeint í sumum verka minna. Sjón býflugna er næm fyrir litum sem eru frekar á bláu og útfjólubláu sviði og gerir þeim kleift að einbeita sér að gagnlegum blómum. Í sumum málverkum hef ég lýst þessu með því að nota þessa sérstöku liti þannig að myndin sýni bæði það sem við og býflugan sjáum.

Í bakgarðinum sjáum við flækjustig náttúrunnar og mér finnst mikilvægt hvernig ég sýni þessar upplýsingar í málverkum. Ég hef þróað með mér raunsæisstíl í málun en um leið látið stærðarskala lönd og leið, snúið við og blandað ólíkum þáttum og án raunverulegs forgrunns eða bakgrunns. Þannig geta frumur eða kollagenkeðjur virst jafn stórar og krónublöð eða jafnvel stærri. Stundum vel ég aðeins hluta af örsmáum þáttum með lögun sem höfðar til mín og blanda þeim öllum saman. Sem vísindamaður finnst mér það fullkomlega rökrétt að taka með eiginleika sem við getum aðeins séð með sérstakri tækni, og það er gert af ásettu ráði. Úr verður abstrakt niðurstaða sem ég tel að endurspegli hið mikla flækjustig sem einkennir náttúruna.

Ekkert í náttúrunni er varanlegt eða óafturkræft. Þættirnir sem mynda blóm eru stöðugt að vaxa, þróast og endurnýjast fyrir framan okkur í ólgandi heimi.
Að sýna þetta í málverki er kannski þar sem listin tekur við af vísindunum og ég vona að myndbygging og samsetning í
verkum mínum veki upp sterka tilfinningu fyrir hreyfingu og lífi.

Fleiri málverk um sama efni má sjá á vefsíðu mínni:
artgeorg.com

Um listamanninn:

Georg er fæddur í Derry-sýslu á Norður-Írlandi 1945 og varð íslenskur ríkisborgari 1975. Hann er með B.Sc hons. og Ph.D. í jarðvísindum frá Queen´s University Belfast og vann við sitt fag og við kennslu í Menntaskólanum við Hamrahlíð í 36 ár. Hann fór á eftirlaun 2007 og sneri sér þá að myndlist af auknum krafti. Hann hefur sótt nám í Myndlistarskóla Kópavogs og Myndlistarskóla Reykjavíkur samfellt síðan 2005 og notið kennslu nokkurra þekktra listamanna.

Georg hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum hópsýningum bæði á Íslandi og erlendis frá 2005 og fengið viðurkenningar fyrir myndlist og umfjöllun frá t.d. International Artist Magazine og American Art Collector. Nokkur verk hans má finna hjá opinberum stofnunum t.d. Menntaskólinn við Hamrahlíð, Háskóli Íslands, Akranesbæ og myndir hafa verið til sýnis til lengri tíma í Sendiráð Íslands í Helsinki, Moskvu og Kaupmannahöfn.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page