top of page

Garðatorg, Garðabær: Dúettar - Birgir Rafn Friðriksson

508A4884.JPG

mánudagur, 29. nóvember 2021

Garðatorg, Garðabær: Dúettar - Birgir Rafn Friðriksson

Dúettar á Garðatorgi 1, Garðabæ
Nú er hafin sérstök sýning á Garðatorgi 1, sýningin Dúettar. Sýningin er í 5 þáttum, eins og um leiksýningu eða framhaldsþætti sé að ræða. Sýningahaldið er þó hvorki leihús né sjónvarspþáttur, heldur er um að ræða myndlistasýningu Birgis Rafns Friðrikssonar - BRF. Birgir Rafn segir sýninguna vera sýningarröð, nefnilega í 5 þáttum og nefnir hana Dúettar. Stafar heitið af því að þar er teflt saman einungis tveimur verkum í senn. Verkin eru ólík af gerð en eiga það sameiginlegt að varða sama málefni. Mætti segja að málefnið sé nálgast frá ólíkum sjónarhólum. Með því að stilla fram aðeins tveimur verkum tengjast verkin saman sjónrænt, eins og raddir í tvísöng og mynda dúett fyrir fólk að upplifa.
Fyrirkomulag sýningarinnar er þannig að hver þáttur stendur u.þ.b. í mánuð. 1.þátturinn, sem er í gangi núna, stendur til 31.nóvember n.k. Þá kemur strax annar þáttur, "Í mótun" og svo koll af kolli fram í marslok á næsta ári. Hver þáttur hefur inntak eða málefni og yfirskrift sem gefur það til kynna. T.d. heitir 1.þáttur "Um upphaf". 2.desember hefst svo "Í mótun". Og þar með stígur nýr málverka dúett fram og “syngur” fyrir áhorfandann fram að áramótum.
Birgir Rafn segist sjálfur vera afar spenntur fyrir þessu og vonast til þess að það skili sér til bæjarbúa. Þó hugmyndin sé komin á jú eftir að þróa hana áfram og vitaskuld mála sum verkanna. Í anda leikhússins er þetta eins og gjörningur þar sem að sýningin geru þróast í einhverja ófyrirséðar áttir. Hann vonast til að bæjarbúar fylgist með, kíki við á torginu á leið sinni í Bónus og upplifi Dúetta á Garðatorgi.

Fyrsti þáttur: 1. - 30.nóvember 2021
Sýningaröð Birgis Rafns Friðrikssonar – BRF á Garðatorgi
1.þáttur af 5. Um upphaf.
Dúett eða tvísöngur er tónverk fyrir tvo, tónverk þar sem tveir leika. Í tvísöng parast og afparast raddirnar, leita til og frá hvor annarri á víxl, leita takts, samræmis og merkingar. Hér er stillt fram tveimur verkum sem þannig eru látin „syngja“ dúett, látin bindast hvor annarri í sjónrænum kossi, fyrir þig, að upplifa.
Í þessum 1. þætti sýningarraðarinnar gefur að líta tvö verk BRF sem bæði tengjast upphafi eða einhverskonar byrjun, þó hvort um sig nálgist inntakið frá ólíkum sjónarhóli. Í verkinu Tímanlega leikur menningin lykilhlutverk á meðan að í hinu verkinu, Snemma, eru öllu formlausari og hamslausari lífskraftar sem ráða för og litur og áferð fá þar mótandi rullu í merkingu verksins.
Þessi sýningarhluti stendur frá 1. - 30.nóvember 2021 og er upphaf 5 þátta sýningarraðar BRF sem fram fer hér á Garðatorgi í Garðabæ veturinn 2021 - 2022Verkin eru til sölu. Áhugasömum er bent á að hafa samband beint við listamanninn í síma 690 3737
----------------------
Tímanlega / Betimes. Olíulitur á striga. 110 x 110 cm. BRF2021.
Snemma / Early. Olíulitur á striga. 110 x 110 cm. BRF2021.
----------------------
2.þáttur af 5 hefst þann 2.desember og stendur til 31.desember. Sá nefnist Í mótun.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page