top of page

Gallery Port: Draugahundur - Bjargey Ólafsdóttir

508A4884.JPG

föstudagur, 18. mars 2022

Gallery Port: Draugahundur - Bjargey Ólafsdóttir

Bjargey Ólafsdóttir - Draugahundur
Laugardaginn 19. mars næstkomandi, kl. 16:00, opnar Bjargey Ólafsdóttir sýninguna Draugahundur í Gallery Port.

Sýningin stendur til fimmtudagsins 31. mars og er opið í Gallery Port frá þriðju- til laugardags frá kl. 12:00 - 17:00.



“Hundar tala, en aðeins til þeirra sem kunna að hlusta.” – Orhan Pamuk.

Sýningin samanstendur af 12 ljósmyndum af Samoyed voffum. Samoyed hundarnir sem líkjast nánast draugum – voru upphaflega ræktaðir til að veiða, draga sleða, og smala hreindýrum.
Hver er þessi hundur? Hundurinn í okkur? Hvíti draugahundurinn er mættur á Laugaveginn.

Bjargey Ólafsdóttir lærði ljósmyndun, málaralist og blandaða tækni í Myndlista og handíðaskóla Íslands og Listaakademíunni í Helsinki, og handritsgerð og leikstjórn í Binger Filmlab í Amsterdam. Hún vinnur í fjölbreyttum miðlum, og verður útkoman oft í formi íronískra verka, stundum ofbeldisfullra eða óhugnanlegra, og sækir hún innblástur í þráhyggjur og fantasíur nútímalífs. Persónurnar í verkum hennar eru gjarnan einstaklingar sem týnast í kunnuglegum en þó framandi aðstæðum. Hún hefur gert nokkrar kvikmyndir sem hlotið hafa lof gagnrýnenda, og hefur sýnt verk sín víða um lönd, t.d. í Listasafni Reykjavíkur, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu í Reykjavík, Kunstverein í München, KunstWerke í Berlín, Galaria Traschi í Santiago, Chile og Färgfabriken Norr í Östersund, Svíþjóð.

Bókin Rófurass sem tengist Draugahundinum er fáanleg á vefsíðu VOID: https://void.photo/rofurass
www.bjargey.com

Gallery Port er styrkt af Reykjavíkurborg.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page