top of page

Gallerí Grótta: Continuum - Place - Ásdís Spanó

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. maí 2022

Gallerí Grótta: Continuum - Place - Ásdís Spanó

Ásdís Spanó, Continuum - Place
Vekjum athygli á nýrri sýningu í Gallerí Gróttu, Seltjarnarnesi. Sýningin stendur yfir frá 12. maí til 4. júní 2022.

Ásdís Spanó myndlistarkona setur fram í sýningu sinni Continuum - Place frumspekilegar og óhlutbundnar birtingarmyndir heimsins þar sem tilbúni hluti hans og náttúran lifa hlið við hlið í viðkvæmu en flóknu bandalagi þar sem skynjun leikur lykilhlutverk í málverkum hennar.

Ásdís Spanó (1973) býr og starfar í Reykjavík. Hún nam myndlist við Listaháskóla Íslands og lauk þaðan námi árið 2003. Hún stundaði einnig myndlistarnám við Central Saint Martins, University of the Arts London í Bretlandi og við Accademia di Belle Arti Bologna á Ítalíu. Ásdís hefur síðustu tvo áratugi sýnt verk sín á samsýningum og einkasýningum og er sýningin Continuum - Place 13. einkasýning hennar.
Á sýningunni er sjónum beint að óhlutbundinni skynjun á tíma og rúmi. Mörk þess óhlutbundna, arkitektúrs og áferðar eru könnuð auk þess sem formum úr menningar-sögulegum kennileitum er teflt fram gegn tilvísunum í söguleg listaverk. Verkin eru byggð upp með lögum af þunnri málningu, útlínuteikningum, bleki, grafíti og útstrokunum. Nýju lagi af málningu er bætt ofan á eldra, stundum er það þurrkað út eða endurtekið yfir það sem áður var. Merkingum er komið fyrir, þær síðan máðst af, efni skarast, leysast upp og endurtaka sig. Hvöss, rúmfræðileg form þekja lög af bleki og litarefnum sem virðast bráðna með tímanum og loks hverfa. Sumir fletirnir eru spreyjaðir og með tímanum málað yfir með þunnri málningu. Verkin vísa í tíma sem líður á óræðum og síbreytilegum stað og endurspeglar varðveislu og lof til fortíðinar og menningarlega mikilvæg kennileiti.
„Í verkum sínum setur Ásdís Spanó fram frumspekilegar og óhlutbundnar birtingarmyndir heimsins þar sem tilbúni hluti hans og náttúran lifa hlið við hlið í viðkvæmu en flóknu bandalagi. List Ásdísar rambar á mörkum tjástefnu og naumhyggjulistar, finnur jafnvægi á milli ólíkra þátta og sameinar þá í upphafinni fagurfræði. Skynjun leikur lykilhlutverk í málverkum hennar. Hún vinnur með sýnilega/ósýnilega tvískiptingu í marglaga málverkum, og nýtir sér eiginleika mismunandi efna til að skapa margslungin verk sem bjóða upp á virk samskipti við áhorfendur og umhverfi sitt, bregðast við breytingum á birtu og stöðu áhorfandans í rýminu.“

Ana Victoria Bruno

Vefsíða: www.asdisspano.com

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page