top of page

Gallerí Göng: Gáttir II - Englar" - Regína Magdalena

508A4884.JPG

laugardagur, 12. febrúar 2022

Gallerí Göng: Gáttir II - Englar" - Regína Magdalena

Sýningaropnun 12. febrúar kl 14-16 í Gallerí Göng Háteigskirkju.

Verk Reginu eiga sér uppruna í dulúðlegum upplifunum hversdagsleikans. Hún miðlar til okkar minningum úr öðrum víddum tilverunar. Þau minna okkur á að lífið er ekki einskorðað við ytri aðstæður og að hver manneskja er samsett af ótal upplifunum sem eru ekki endilega öðrum sjáanlegar. -Þ.Þ
Aðeins um Regínu.
Hún var búsett á Ítalíu í 7 ár en kom svo til Íslands í listnám. Regína hefur alltaf verið með sterkar tengingar til Ítalíu, en hún bjó í Napólí um tíma og talar góða ítölsku.
Árið 1998 lýkur hún námi við málaradeild í MHÍ og tekur kennsluréttindi í LHÍ 2003. Veturinn 2006 til 2007 stundaði hún nám í málaradeild Accademia di Belle arti di Napoli á Ítalíu.
Áhrif ítalska, klassíska málverksins gætir í litum, áferð og formum verka hennar sem þó endurspegla íslenska dulúð og hulduheima.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page