top of page

Gallerí Úthverfa: ÁN TITILS - Halla Mía

508A4884.JPG

föstudagur, 25. nóvember 2022

Gallerí Úthverfa: ÁN TITILS - Halla Mía

Halla Mía
ÁN TITILS
18.11 – 11.12 2022

Föstudaginn 18. nóvember kl. 17 opnaði sýning á verki Höllu Míu í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið ,,ÁN TITILS‘‘ og stendur til sunnudagsins 11. desember.
---

Sumir segja að á góðum degi sé hægt að sjá með góðum kíki frá Vestfjörðum til Austurstrandar Grænlands. Verkið KÍKIR er unnið undir áhrifum kenninga í sjónrænni mannfræði. Viðfangsefnið er fjarlægðir; í raun og í huganum. Hvers getur fólk orðið vísara með því að ferðast yfir sundið sem skilur að Ísland og Grænland? – eða með því að taka skref inn í rými sýningarinnar Kíkis?

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna er verkið KÍKIR ekki á sýningunni, eins og áður hafði verið auglýst, heldur annað verk. Verkið ÁN TITILS hefur verið tíu mánuði í smíðum og er veigamesta verkefni Höllu Míu hingað til.

Halla Mía (f.1986) er sjálfstætt starfandi dagskrárgerðarmaður búsett á Ísafirði. Hún lauk mastersnámi í sjónrænni mannfræði frá Freie Universität í Berlín 2013 og BA gráðu í íslensku og ritlist frá Háskóla Íslands 2011. Eftir útskrift hefur Halla unnið við hvers kyns dagskrárgerð fyrir útvarp, sjónvarp og vef, fyrir Ríkisútvarpið og sem sjálfstætt starfandi. Halla starfaði sem fréttamaður RÚV á Ísafirði á árunum 2015-2019.


Starfsemi Úthverfu nýtur styrkja fyrir einstök verkefni úr Myndlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Vestjfarða og frá Ísafjarðarbæ.
Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space
Aðalstræti 22 - 400 Ísafjörður
Opið eftir samkomulagi
galleryoutvert@gmail.com
+354 868 1845
www.kolsalt.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page