top of page

Fyrirlestur hjá Textílfélaginu: Brandy Godsil

508A4884.JPG

fimmtudagur, 25. maí 2023

Fyrirlestur hjá Textílfélaginu: Brandy Godsil

Textíllistakonan og klæðskerinn Brandy Godsil verður með fyrirlestur hjá Textílfélaginu næstkomandi mánudag 29.maí 17:00-18:00 á Textílverkstæðinu á Korpúlfsstöðum.

Brandy notar fjölbreyttar aðferðir í myndlist og fatahönnun, sem dæmi má nefna vefnað, þæfingu, jurtalitun, útsaum og sníðagerð. Undanfarin ár hefur Brandy hannað efni og snið á hátísku fötum og búningum fyrir stórviðburði í tónlistar- og kvikmyndaheiminum.

Brandy útskrifaðist frá Maryland Institute College of Art árið 2009 með BFA gráðu í textíllist og tilraunakenndri fatahönnun. Eftir útskrift var hún í starfsnámi í klæðskurði og sníðagerð í New York. Sumarið 2022 stundaði hún nám í tilraunakenndri fatahönnun við Central Saint Martins í London og myndlist í Parsons School of Design í New York. Nú kennir Brandy textíllist, fatasaum, fatahönnun og teikningu í Norður-Karólínufylki í Bandaríkjunum og víðar.

Hún stofnaði félagasamtökin, Intertwine Arts, sem kenna fólki með þroskahömlun að vefa. Þar starfar hún sem ráðgjafi og kennari. Árið 2023 var Brandy í gestavinnustofu í Oaxaca í Mexíkó með Thread Caravan og Texere. Maí mánuði varði hún svo í Ós gestavinnustofu hjá Textílmiðstöðinni á Blönduósi.

Hægt er að skrá sig með því að senda línu á textilfelagid@gmail.com. Fyrirlesturinn kostar 1000 kr. fyrir þá sem ekki eru meðlimir í Textílfélaginu. Kaffi og te í boði.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page