top of page

Fundarboð: Aðalfundur SÍM 2026

508A4884.JPG

miðvikudagur, 11. mars 2026

Fundarboð: Aðalfundur SÍM 2026

(English below)

Aðalfundur Sambands íslenskra myndlistarmanna verður haldinn laugardaginn 30. maí næstkomandi frá kl.16:00-18:00 á Korpúlfsstöðum, Thorsvegi 1, 112 Reykjavík (upp rampinn).

Auglýst er eftir framboðum í stjórn SÍM fyrir tímabilið 2026 - 2028

Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar
3. Stjórnarkosning
4. Kosning eins fulltrúa í sambandsráð sbr. 9. gr.
5. Kosning félagslegs skoðunarmanns og endurskoðanda til eins árs
6. Lagabreytingar
7. Ákvörðun félagsgjalda
8. Önnur mál

Eftirtaldir stjórnarmenn voru kjörnir til tveggja ára í maí 2024 og lýkur þeirra kjörtímabili á þessum aðalfundi:

Anna Eyjólfsdóttir, formaður
Hlynur Helgason, varaformaður
Anna Rún Tryggvadóttir, aðalmaður

Skrifleg tilkynning um framboð til stjórnarstarfa skal hafa borist skrifstofu SÍM eigi síðar en miðvikudaginn 29. apríl 2026 kl. 16:00. Framboði til formanns skal fylgja stutt bréf (hámark 1 bls), með upplýsingum um frambjóðanda og helstu málefnum til birtingar á vef SÍM, ásamt mynd.

Stjórnin skal kosin rafrænt og eru allir skuldlausir félagsmenn sambandsins kjörgengir. Allar samþykktir á aðalfundi verða að hljóta einfaldan meirihluta greiddra atkvæða.

Þann 6. maí n.k. verður sent út loka fundarboð með lista yfir þá félagsmenn sem gefa kost á sér til stjórnarstarfa fyrir SÍM á næsta kjörtímabili.

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa SÍM í tölvupósti á sim@sim.is eða í síma 551 1346.

//

The general meeting of the Association of Icelandic Visual Artists will be held on Saturday, May 30, 2026 from 4:00 p.m. to 6:00 p.m. at Korpúlfsstaðir (up ramp).

A call for nominations to the SÍM Board for the 2026–2028 term is hereby announced.

Agenda:
1. Annual report
2. Accounts
3. Board election
4. Election of one representative in the federal council
5. Election of social inspector and auditor for one year
6. Legal changes
7. Determination of membership fees
8. Other matters

The following board members were elected for a two-year term in May 2024 and their terms will end at this general meeting:

Anna Eyjólfsdóttir, Chairman
Hlynur Helgason
Anna Rún Tryggvadóttir

A written notice of candidacy for board positions must be delivered to the office no later than Wednesday, April 29, 2026 at 16:00. A candidacy for chairman must be accompanied by a short letter (maximum 1 page), with information about the candidate and main goals, to be published on the SÍM website, together with a photo.

The board shall be elected electronically, and all debt-free members of the association are eligible. All resolutions at the general meeting must receive a simple majority of votes.

On May 6, a final meeting notice will be sent out with a list of the members who are running for board positions for the next term.

For more information, please contact the SÍM office by e-mail at sim@sim.is or via phone: 551 1346.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page