top of page

Frosti Fjalar: Arfleifð listamanns

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. nóvember 2026

Frosti Fjalar: Arfleifð listamanns

Félagsheimilið á Flúðum, Sunnudaginn 22. nóvember kl 13:00 - 16:00
Minningarviðburður og pop-up sýning í tilefni af 90 ára fæðingarafmæli listamannsins (1936–2026)

Barnasmiðja og léttar veitingar.
Ókeypis aðgangur – öll velkomin!

Listasafn Árnesinga og Hrunamannahreppur bjóða til sérstaks minningarviðburðar til heiðurs myndlistarmanninum Frosta Fjalar (1936–2026), sem lést í júní síðastliðnum en hefði orðið níræður þann 29. desember á þessu ári.

Frosti Fjalar, sem var skírður Jakob Jónsson, var afkastamikill listamaður sem fór sínar eigin leiðir í íslensku myndlistarlífi. Hann lauk prófi í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi árið 1961 og stundaði síðar myndlistarnám í Kaupmannahöfn á árunum 1965–1971. Hann tók virkan þátt í íslensku myndlistarlífi á áttunda og níunda áratugnum og hélt meðal annars sýningar í Bogasal Þjóðminjasafnsins, Ásmundarsal og Stöðlakoti.

Eftir síðustu sýningu sína árið 1991 dró hann sig í hlé frá opinberu myndlistarlífi en hélt áfram að skapa í einrúmi og byggði upp umfangsmikið safn listaverka.

Frosti arfleiddi Listasafn Árnesinga að öllum eigum sínum og listaverkum og hefur safnið nú tekið við þessari einstöku gjöf. Með henni hefur ævistarf listamannsins verið falið safninu til varðveislu, rannsókna og miðlunar til komandi kynslóða.

Þótt Frosti hafi fæðst á Bíldudal átti fjölskylda hans djúpar rætur í Hrunamannahreppi. Faðir hans, Jón Jakobsson prestur, fæddist á Galtafelli árið 1903 og föðurafi hans, Jakob Jónsson, fæddist í Bryðjuholti árið 1866 og bjó síðar meðal annars í Miðfelli og á Galtafelli.

Þessi ættartengsl varpa áhugaverðu ljósi á tengsl Frosta við Árnessýslu og ákvörðun hans um að arfleiða Listasafn Árnesinga að eigum sínum og ævistarfi.

Á viðburðinum verður fjallað um líf Frosta, ættartengsl hans við Hrunamannahrepp, myndlistarferil hans og þá merku arfleifð sem hann lætur eftir sig. Jafnframt verður sett upp sérstök pop-up sýning á úrvali verka hans í Félagsheimilinu á Flúðum, aðeins þennan eina dag.

Með viðburðinum vilja Listasafn Árnesinga og Hrunamannahreppur heiðra minningu Frosta Fjalars, kynna verk hans fyrir almenningi og fagna þeirri einstöku gjöf sem safninu hefur verið falin til varðveislu.

Dagskrá

Kristín Scheving: safnstjóri Listasafns Árnesinga, flytur ávarp fyrir hönd safnsins.

Jón Bjarnason: oddviti Hrunamannahrepps, flytur ávarp fyrir hönd sveitarfélagsins.

Ásdís Spanó: myndlistarmaður og ráðgjafi á sviði myndlistar, og Kristín Ásta Kristinsdóttir, ljósmyndari og annar höfunda bókarinnar Bjarmaband, fjalla um Frosta Fjalar, listsköpun hans og arfleifð.

Þorlákur Björnsson: frændi Frosta Fjalars, mun einnig segja nokkur orð og minnast listamannsins.

Sýning, barnasmiðja og veitingar:
Á meðan viðburðinum stendur gefst gestum tækifæri til að skoða úrval verka Frosta Fjalars á sérstakri eins dags sýningu. Einnig verður boðið upp á skapandi barnasmiðju og léttar veitingar.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Listasafns Árnesinga og Hrunamannahrepps.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page