Friðarsúlan tendruð í Viðey 9. október

þriðjudagur, 6. október 2026
Friðarsúlan tendruð í Viðey 9. október
Föstudaginn 9. október klukkan 20.00 verður kveikt á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn. Af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta og hátíðlega dagskrá með leiðsögnum, listasmiðju, tónlistarflutningi og ávarpi borgarstjórans í Reykjavík.
Í ár eru tuttugu ár liðin frá því fyrst var kveikt á Friðarsúlunni í Viðey, einu þekktasta útilistaverki landsins og sterku tákni um frið, von og samstöðu.
Dagskráin í Viðey hefst síðdegis og stendur fram að tendruninni klukkan 20.00.
Í boði verða leiðsagnir á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Yoko Ono og Richard Serra í Viðey ásamt sögugöngum á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur. Gestir geta líka tekið þátt í listasmiðju í Nausti.
Við Friðarsúluna sjálfa hefst hátíðardagskrá klukkan 19.45 með tónlistarflutningi Árnýjar Margrétar.
Að því loknu flytur Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur ávarp áður en Friðarsúlan verður tendruð við lagið Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono klukkan 20.00.
Ferðirnar út í Viðey eru í boði höfundar listaverksins, Yoko Ono og hefjast frá Skarfabakka klukkan 17:30 og einnig verða í boði fríar strætóferðir frá Ráðhúsi Reykjavíkur að Skarfabakka.
Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram í ferjuferðirnar.
Opið verður í Viðeyjarstofu þar sem hægt verður að kaupa veitingar.
Friðarsúlan „Imagine Peace Tower“ er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007. Verkið er sterkt kennileiti í borginni og þörf áminning til okkar allra um að halda á lofti hugsjónum friðar, sérstaklega nú þegar stríð geisa víða um veröldina. Yoko Ono skapaði Friðarsúluna til að halda á lofti þeim friðarboðskap sem hún og eiginmaður hennar John Lennon töluðu fyrir og tileinkaði honum verkið sem logar frá fæðingardegi hans 9. október til áramóta.
Verkið er í formi „óskabrunns“ þar sem orðin Hugsa sér frið eru rist á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljósasúla sem samanstendur af fimmtán geislum sem sameinast í eitt sterkt ljós sem teygir sig til himins.
Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna á vefsíðu Listasafns Reykjavíkur, listasafnreykjavikur.is.
