top of page

Freyja Eilíf / Tegan Moore: Fasabreytingar / Phase Change

508A4884.JPG

fimmtudagur, 9. júlí 2026

Freyja Eilíf / Tegan Moore: Fasabreytingar / Phase Change

Sýningin Fasabreytingar opnar 10. Júlí 17:00 - 19:00 í Gallery Kannski, Lindargötu 66, á verkum eftir myndlistarkonurnar Freyju Eilíf og Tegan Moore.

Sýningin tilheyrir röð viðburða hjá Kannski gallery þar sem íslenskum listamönnum er raðað á móti erlendum sem koma til landsins til að sýna.
Málverkasería Freyju Eilífar, Þröskuldsseyra, notar kertavax sem innblástur til að skapa áþreifanleg form og minningu um eitthvað sem hefur bráðnað og storknað. Vatnslogi er skúlptúr eftir hana á sýningunni sem mun hverfa á sjálfri opnuninni.

Tegan Moore sameinar efnafræði, rannsóknir og fundna hluti og öldrun efna sem efnivið. Hið nrothætta, viðkvæmni og efniskenndar hrukkur bera með sér sögu efnafræðilegra og eðlisfræðilegra áhrifa; eins og far handar og bólga eftir áratug af raka. Báðar listakonurnar rannsaka óstöðugleika efna sem umlykja okkur og möguleikann á efnislegu minni. Verk þeirra eru dreifð á milli veggja og gólfs skapa mjúka og fíngerða sýningu sem fjallar bæði um uppbygginu og niðurbrot.

Sýningin verður opin tvær helgar í röð frá kl. 14:00 - 16:00 til og með 19. júlí.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page