top of page

Framlengdur umsóknarfrestur: D-vítamín samsýning árið 2024

508A4884.JPG

miðvikudagur, 5. júlí 2023

Framlengdur umsóknarfrestur: D-vítamín samsýning árið 2024

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest um þátttöku listamanna í sýningunni D-vítamín sem verður opnuð í Hafnarhúsi í febrúar 2024. Nýr umsóknarfrestur er til kl.16.00 mánudaginn 10. júlí.

Listasafn Reykjavíkur auglýsir eftir listamönnum til að taka þátt í samsýningunni D-vítamín í Hafnarhúsi. Með þessari sýningu brýtur safnið upp þá hefð að bjóða upprennandi listamönnum að sýna í D-sal safnsins, og setur upp fjölmennari samsýningu í fleiri sýningarsölum Hafnarhúss. Er þetta gert í tilefni þess að nú hafa 50 listamenn verið kynntir í D-sal frá árinu 2007.

Við val á listamönnum er gerð sú krafa að þeir hafi ekki haldið einkasýningu í opinberu listasafni og hafi tengsl við íslenskt listalíf í gegnum nám, sýningar og/eða búsetu hér á landi. Með umsókninni skal fylgja ferilskrá ásamt stuttri lýsingu á eigin listsköpun og hlekk á heimasíðu ef við á auk fimm ljósmynda af fyrri verkum. Senda má tillögu að/lýsingu á áður ósýndu(-m) verki(-um) (hámark 250 orð). Sérskipuð dómnefnd velur úr umsóknum.

Við hvetjum listamenn til að láta vita af sér og senda inn umsóknir.

Umsóknir berist fyrir kl. 16.00, mánudaginn 10. júlí 2023 á netfangið listasafn@reykjavik.is merktar „D-2024“. Fyrirspurnir berist á sama netfang.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page