top of page

Frásögnin er dregin í hlé - A Venus spilling

508A4884.JPG

fimmtudagur, 4. desember 2025

Frásögnin er dregin í hlé - A Venus spilling

Næstkomandi laugardag opna níu listamenn sem öll hafa nýlega lokið námi ýmist hérlendis eða erlendis sýninguna Frásögnin er dregin í hlé - A Venus spilling og sýna þau ný verk sem búin hafa verið til sérstaklega fyrir sýninguna.

Þótt verkin fjalli ekki beint um þessa síðustu og verstu tíma (eða þessa nýjustu síðustu og verstu) er tilvistarlegur undirtónn í sýningunni. Þar kennir viðhorfa sem dansa í kringum þekkingarlega ofgnótt samtímans, leika á að-þrotum-komnar fílósófískar kreddur (eins og þessar kreddur séu öldruð fórnarlömb flókinnar svikamillu) og hangsa (því stundum er ekkert meira afgerandi).

Dragi sýningin hring utan um eitthvað væri það helst miðjuleysi þeirrar fjölradda afstöðu sem einkennir tíðarandann. Fjölradda og ólíkinda afstaða sem nú ómar, eins og kór, um sýningarrými Kling og Bang í algjöru skeytingarleysi við síaukinn vélruna og teknó-leiðréttingar (auto-tune) af hvurslags tagi.

Sýningin einkennist af endur-hvarfi í efni, anda og hlédrægni eða hiki sem einkennir þesslags friðsemd sem aðeins er að finna í andstöðu við brjálæði hvers samtíma fyrir sig.

Sýningin opnar kl 17 laugardaginn 6. des og stendur til 8. febrúar 2026.

Listamenn sýningarinnar:
Albertina Tevajärvi
Ásgerður Arnardóttir
Gabriel Backman Waltersson
Hekla Kollmar
Lúðvík Vífill Arason
Silja Rún Högnadóttir
Sunneva Elvarsdóttir
Þórður Túsan Alisson
Ævar Uggason

Sýningarstjórar:
Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Páll Haukur Björnsson
Sólbjört Vera Ómarsdóttir
Una Björg Magnúsdóttir

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page