top of page

Fjórir vinir, kannski fimm

508A4884.JPG

þriðjudagur, 15. september 2026

Fjórir vinir, kannski fimm

Sigtryggur Berg | Franz Graf | Gunnhildur Hauksdóttir | Claudia Schumann

Sýningin Fjórir vinir, kannski fimm leiðir saman fjóra listamenn í HilbertRaum sem sameina teikningu, ljósmyndaverk, málverk, innsetningar og gjörninga í tveimur aðalrýmum gallerísins.

Í framrýminu sýna Claudia Schumann og Franz Graf innsetningu nýrra og nýlegra ljósmynda- og prentverka. Í bakrýminu munu Gunnhildur Hauksdóttir og Sigtryggur Berg þræða saman teikningar og málverk. Sýningin endurspeglar tengsl í gegnum Ísland, Austurríki og Þýskaland og inniheldur verk og inngrip sem geta þróast og ofist saman saman á meðan á uppsetningu stendur.

Gjörningadagskrá í galleríinu laugardaginn 26. september.
Sigtryggur Berg, Gunnhildur Hauksdóttir flytja gjörninga Doreen Kuzke, tónskáld og raddbeitandi flytur nýtt verk. Fleyri gjörningar gætu bæst í dagskránna en allir eiga það sameiginlegt að vinna með mannsröddina út frá mismunandi nálgun.

Titill sýningararnnir vísar í sýningu sem Björn Roth, Halldór Björn Runólfsson og Sigríður Melrós settu upp í Listasafni Íslands árið 2009 með listafólki frá Íslandi og Norður Evrópu.

Opnun föstudaginn 18. september klukkan 18:00
Stendur til 27. september
Opnunartímar
Föstudagur 14.19 – 19.00
Laugardagur og sunnudagur klukkan 14.00-19.00
HilbertRaum
Reuterstr. 31, 12047 Berlín, Þýskaland
https://hilbertraum.org

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page