Finnur Arnar Arnarsson: Samtal listamanns og safnstjóra

miðvikudagur, 11. febrúar 2026
Finnur Arnar Arnarsson: Samtal listamanns og safnstjóra
Ásmundarsafn
Samtal listamanns og safnstjóra
Sunnudag 15. febrúar kl. 14.00.
Finnur Arnar Arnarson myndlistarmaður og Markús Þór Andrésson safnstjóri eiga opið samtal um vinnustofudvöl Finns í Ásmundarsafni, sunnudaginn 15. febrúar kl. 14.00.
Finnur hefur undanfarnar vikur komið sér fyrir á safninu og dvelur þar öllum stundum:
„Ég bý í tjaldi inni í safninu, daga og nætur, dálítið eins og dýr. Uppi í kúlunni er ég svo að mála „dome“, svona kirkjuloft eins og er í gömlum dómkirkjum. Verkið heitir Dómur og fjallar um það að vera þetta karldýr en líka það að vera dæmdur til að vera myndlistarmaður. " Finnur Arnar Arnarson, myndlistarmaður.
Undraland er verkefni tileinkað sögu Ásmundarsafns. Þar var heimili og vinnustofa Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara (1893-1982) sem hann hannaði sjálfur og byggði á árunum 1942-1950. Þá fjóra áratugi sem listamaðurinn starfaði í húsinu var það vettvangur frjórrar listsköpunar. Frá byrjun árs 2025 hefur listamönnum verið boðin aðstaða í húsinu til þess að vinna að eigin verkum í vinnslu eða hvers konar ferli.
Verið öll velkomin í Ásmundarsafn á sunnudag. Miði á safnið gildir, frítt inn fyrir árskorts- og menningarkorthafa og börn 18 ára og yngri.
