top of page

Fagurfræði skynfæra og lystisemda í Safnasafninu

508A4884.JPG

föstudagur, 5. júlí 2024

Fagurfræði skynfæra og lystisemda í Safnasafninu

Safnasafnið hefur sett upp stóra sýningu á verkum eftir 77 höfunda. Sýningin ber heitið Fagurfræði skynfæra og lystisemda og stendur opin til 22. september 2024.

Sýningunni er ætlað að virkja skilningarvitin, tengja saman hluti, form og liti með leiðarstefjum, tilvísunum og sjónlínum. Hún vekur spurningar um hversdagsleg gildi og frumlegar útfærslur verkanna. Virkja hugarflugið með áherslu á kímni, bjartsýni, langanir, reynslu og tilfinningar. Með jákvæðu hugarfari gæti niðurstaðan legið í augum uppi: Það er gott að halla eyra að fólki sem hefur munninn fyrir neðan nefið!

Listamenn:
Ásta Björk Friðbertsdóttir (1947-2022), Ásta Ólafsdóttir, Ásgeir Jón Emilsson (1931-1999), Anna Líndal, Bjarni H. Þórarinsson, Bryndís Símonardóttir, Daði Guðbjörnsson, Dieter Roth (1930-1998), Dorothy Iannone (1933-2022), Elsa Doróthea Gísladóttir, Erla Þórarinsdóttir, Gísli Halldórsson, Gloría Lopez, Guðmundur Oddur Magnússon, Guðrún Erla Geirsdóttir, Guðrún Hadda Bjarnadóttir, Gunnhildur Walsh Hauksdóttir, Halldóra Emilsdóttir, Harpa Björnsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Hildur Kristín Jakobsdóttir (1935-2003), Helgi Valdimarsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hjálmar Jónsson frá Bólu (1796-1875), Ívar Valgarðsson, Joe Keys, Jón B.K. Ransu, Kees Visser, Kristján Guðmundsson, Magnhildur Sigurðardóttir, Magnús Pálsson, Níels Hafstein, Nini Tang, Oddný Magnúsdóttir, Óskar Margeir Beck Jónsson (1922-1997), Peter Holstein, Ragnar Kjartansson, Ragnheiður Þóra Ragnarsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rúrí, Sara Björnsdóttir, Sigurjón Jóhannsson (1939-2023), Sigríður Ágústsdóttir (1949-2023), Stefán Tryggva og Sigríðarson, Steinunn Björg Egilsdóttir, Tómas Jónsson, Þórgunnur Þórsdóttir, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, Þór Vigfússon, Unnar Örn, Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, Yvonne Beelen & óþekkt listafólk.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page