Eyrarbakki: Hafsjór - Oceanus - Alþjóðleg listahátíð
fimmtudagur, 9. júní 2022
Eyrarbakki: Hafsjór - Oceanus - Alþjóðleg listahátíð
Listahátíðin Hafsjór - Oceanus vorið 2022
Alþjóðlega listahátíðin Hafsjór – Oceanus stendur yfir frá 15. maí til 15. júní 2022 á Eyrarbakka og er samstarfsverkefni Byggðasafns Árnesinga og Ástu Vilhelmínu Guðmundsdóttur listamanns sem er jafnframt sýningarstjóri hátíðarinnar. Sýningarnar munu standa allt sumarið fram á haust.
Listafólkið kemur frá Suður-Kóreu, Japan, Mauritius, Póllandi, Litháen, Indlandi, Nepal, Frakkland, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Íslandi og munu blása lífi í allt samfélagið. Þau munu vinna verk sín á staðnum í alls kyns skemmum og skúrum og sækja innblástur bæði úr nærsamfélaginu og úr safninu sjálfu. Saga og menning Eyrarbakka og nágrennis fær mögulega nýja túlkun í meðförum erlendra listamanna.
Opnunarhátíð verður helgina 10.-12. júní en opnar vinnustofur, listasmiðjur og fyrirlestrar verða einnig hluti af hluti af hátíðinni og liður í að tengja saman gesti og listamenn.
Á Hafsjó verður „Off Venue“ dagskrá og er vonast til að listamenn og hagleiksfólk á Eyrabakka muni opna dyrnar sínar fyrir gestum.
Listamaðurinn Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir er forgangsmaður listahátíðarinnar. vinnustofum . Ásta er búsett í Skúmstaðarhverfinu á Eyrarbakka þar sem hún er með vinnustofu.
Tilgangur hátíðarinnar er að efla listsköpun á svæðinu, mynda tengsl við aðra menningarheima og fá sýn annarra á samfélagið hér við sjávarsíðuna.