top of page

Eyjólfur Einarsson: Vegferð

508A4884.JPG

miðvikudagur, 11. febrúar 2026

Eyjólfur Einarsson: Vegferð

Útgáfuhof þann 14. febrúar kl. 15:00 - 17:00.

Kirkjuhúsið í Bústaðakirkju að Tunguvegi 25.

Eyjólfur Einarsson listmálari býður til útgáfuteitis næstkomandi laugardag, 14. febrúar í tilefni útgáfu á bók hans, Vegferð. Bókin er ævisaga hans í eigin vatnslitamyndum, alls 80 talsins. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur ritar ítarlegan formála bókarinnar, um listmálarann og verk hans.

Í opnuviðtali í Morgunblaðinu 8. febrúar, segir; „Til að koma sér aftur í gang eftir erfið veikindi byrjaði Eyjólfur, sem er 85 ára, að skissa litlar vatnslitamyndir í bók Ég vissi svo sem ekkert hvert ég var að stefna og hafði ekkert sérstakt takmark. Þetta var samsafn af nýjum og gömlum hugmyndum og allar áttu þær sameiginlegt að vegur var á þeim; auðir vegir út í buskann hafa alltaf heillað mig. Það býr einhver mystík í auðum vegum. Hægt og rólega fór ég að bæta manni inn á myndirnar og þegar konan mín, sem er gamall myndlistarkennari, fór að skoða þær sagði hún: „Þú ert að teikna sjálfan þig!“ Ertu að gera ævisögu þína?“

Verið hjartanlega velkomin til útgáfuteitis í Kirkjuhúsið á neðri hæð Bústaðakirkju, gengið inn frá Bústaðavegi (áður Borgarbókarsafn). Listamaðurinn mun kynna bókina og árita hana. Boðið verður upp á veitingar.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page