top of page

Eygló Harðardóttir : Dularfull hreyfing

508A4884.JPG

miðvikudagur, 29. apríl 2026

Eygló Harðardóttir : Dularfull hreyfing

01.05. 2026 til 14.06. 2026

Föstudaginn fyrsta maí klukkan tvö (14.00) opnar ný einkasýning Eyglóar Harðardóttur, Dularfull hreyfing, í Glerhúsinu. Sýningin sem stendur opin til 14. júní verður opin laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 til 17.00 og á næstu frídögum.

Eygló hefur haldið fjölda sýninga og víða. Nýlegast, á þessu ári, sýndi hún innsetninguna Færðu mér liti í Höggmyndagarði Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík. Á síðasta ári opnaði einkasýning hennar Tilgátur í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði.

Eygló vinnur gjarnan tví- og þrívíða abstrakt-skúlptúra úr pappír; innsetningar; bókverk; verk í almenningsrými. Hráefni eins og litarefni, pappír, strigi og gler leggja grunn að hugmyndunum og verða drifkraftur til að kanna möguleika og takmarkanir miðilsins hverju sinni. Verkin eru afsprengi ferlis þar sem efnið, handverkið, hendingin og leitin vega salt á meðan áður óþekkt skref verða stigin eftir litastiganum.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page