Eva Ágústa: Hinsegin – einhverf
fimmtudagur, 22. ágúst 2024
Eva Ágústa: Hinsegin – einhverf
Hinsegin – einhverf er titill sýningar sem opnuð verður í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur á menningarnótt laugardag kl. 17. Á sýningunni er safn mynda sem Eva Ágústa Aradóttir tók af einstaklingum sem eru hinsegin og staðsetja sig á einhverfurófi, með eða án einhverfugreiningar.
Eva Ágústa ljósmyndari, sem sjálf er trans og á einhverfurófi, hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að segja sögur af fólki út frá sínum hugmyndum um það. Frá unga aldri hefur hún fylgst með því hvernig óeinhverfir haga sér í samfélaginu og út frá því hefur hún reynt að breyta hegðun sinni til þess að passa betur inn í samfélagið. Einhverfir verða gjarnan utanveltu vegna skynjunar sinnar á umhverfinu. Í dag notar Eva þessa óhefðbundnu skynjun sem styrkleika í myndsköpun sinni.
Eva lærði ljósmyndun í Tækniskólanum í Reykjavík árið 2009 og lauk sveinsprófi haustið 2011. Hún tók sér pásu frá ljósmyndun í nokkur ár en hefur að undanförnu fundið hillu sína aftur og hefur meðal annars fengist við nokkur verkefni sem snúa að því að segja sögur af fólki.
Sýningin stendur til 3. nóvember 2024.