top of page

Esseyja útgáfuhóf og gosafmæli

508A4884.JPG

fimmtudagur, 9. nóvember 2023

Esseyja útgáfuhóf og gosafmæli

Verið velkomin á útgáfuhóf bókarinnar Esseyja / Island Fiction í Norræna húsinu, þriðjudaginn 14. nóvember á gosafmæli Surtseyjar. Í þessari fallegu útgáfu er fléttað saman listaverkum, ferðasögum og textum sem fjalla um margslungnar hliðar á tilveru og sögu Surtseyjar í 60 ár.


Húsið opnar kl. 16:30 þar sem gestir geta nælt sér í árituð eintök, dagskráin stundvíslega kl. 17:00.


Esseyja er þverfaglegt ritverk eftir myndlistarkonuna Þorgerði Ólafsdóttur sem ferðaðist til Surtseyjar sumarið 2021. Í samspili við myndlistarverkin í bókinni eru esseyjur eftir fjórar fræðikonur og rannsakendur; Birnu Lárusdóttur, íslensku- og fornleifafræðing, Guðbjörgu R. Jóhannesdóttur, umhverfisheimspeking, Þóru Pétursdóttur, fornleifa-og minjafræðing og Becky Forsythe sýningastjóra.


Í bókinni fá lesendur að skyggnast inn í marglaga veröld Surtseyjar út frá sjónarhorni myndlistar, upplifun af náttúru, hugmyndum um fjarlægar eyjar, menningar- og náttúruminjar á mannöld og hvernig við getum tengst stað sem ekki er hægt að heimsækja. Fyrir útgáfuna veita Þorgerður og Gunndís Ýr Finnbogadóttir myndlistarkona, lesendum innsýn í nýtt verk sem byggir á viðtölum við ólíka hópa Surtseyjarfara og fjallar um upplifun fólks af Surtsey.


Útgáfan er vegleg, tvöhundruð blaðsíður á lengd og er bæði með íslenskum og enskum texta. Hönnuður bókarinnar er Elín Edda Þorsteinsdóttir, grafískur hönnuður og myndskreytir. Bókin er gefin út í samstarfi við rannsóknarverkefnið Relics of Nature sem Þorgerður og Þóra eru einnig þátttakendur í.


Húsið opnar kl. 16:30 eins og áður sagði og dagskráin hefst kl. 17:00 þegar allir þátttakendur í bókinn munu flytja hluta úr verkum sínum.



Í tengslum við útgáfuna og gosafmæli Surtseyjar, hefur Þorgerður sett upp verkið Spor á Kömbunum, þar sem vel sést til Surtseyjar í björtu veðri. Verkið er hluti af Sequences XI myndlistarhátíð sem fer fram í Marshallhúsinu, Safnahúsinu á Hverfisgötu og Norræna húsinu.

Styrktarðaðilar þessa útgáfuverks eru Relics of Nature, Háskólinn í Osló (UiO), Rannsóknarmiðstöð Noregs, Umhverfisstofnun, Rannís – starfslaunasjóður myndlistarmanna, Myndlistarsjóður og Bókmenntassjóður.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page