top of page

Erla Þórarinsdóttir: Endurómur

508A4884.JPG

miðvikudagur, 4. nóvember 2026

Erla Þórarinsdóttir: Endurómur

Listaval, Opnun laugardaginn 7. nóvember kl 15:00

Á sýningunni má sjá blýantsteikningar, járnteikningar, stálverk og málverk frá ólíkum tímabilum á ferli listakonunnar. Samhliða opnuninni verður útgáfu ritsins Ómur / Resonans fagnað.
Í myndlist Erlu birtist leit að frummyndum og samhengi okkar í heiminum, hið sammennska. Erla hefur í gegnum árin þróað eigið myndmál sem einkennist af litum, táknum, hreyfingu og endurtekningu.

Á sýningunni í Listval eru sýndar teikningar sem enduróma ástand í samtímanum, hugtök og ímyndir í leit að virkni og vilja til að gera heilt. Í vinnuferlinu gefur Erla innsæinu svigrúm og leyfir hugmyndum að þróast á eigin forsendum. Þannig getur form stækkað eða tekið á sig nýja mynd í öðrum efniviði, líkt og sjá má í stálverkinu Saman.

Í blýantsteikningunum er línan í forgrunni; einlínur eða lúpur sem tengjast í órjúfanlega heild. Leikur og leit, ritblý og strokur, einfalt og flókið. Sameiginlegt og prívat, möguleikar og ákall eftir nýrri framtíð, alheimssýn og ósk um póesíu.
Í járnteikningunum og stálverkinu Saman færist hin línulega teikning af pappírnum, verður þrívíð og tekur sér pláss í rýminu.


Málverkin bæta við litum og áferð og sýna aðra hlið á myndheimi Erlu, sem hefur í gegnum árin notað blaðsilfur í verkum sínum, efni sem bregst við umhverfi sínu og breytist með tímanum.
Hvort sem er í teikningunum eða málverkunum þá er eins og hvert verk búi yfir sínum eigin ómi sem við skynjum fremur en heyrum. Saman mynda þau enduróm þar sem form og hugmyndir kallast á.

Útgáfu ritsins Ómur / Resonans fagnað
Samhliða sýningaropnuninni verður útgáfu ritsins Ómur / Resonans fagnað. Ritið kemur út í tengslum við samnefnda sýningu Erlu sem haldin var í Listasafni Reykjanesbæjar sumarið 2026. Í því er fjallað um myndlist Erlu og feril hennar með ljósmyndum af verkum frá ýmsum tímabilum og textum eftir Jón Proppé, Helenu Solveigar Aðalsteinsbur og Þórunni Valdimarsdóttur.

Erla Þórarinsdóttir
Erla Þórarinsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1955 og nam myndlist við Konstfack í Stokkhólmi og Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam. Hún hefur búið og starfað á Norðurlöndunum, í New York og Kína og sýnt verk sín bæði á Íslandi og erlendis. Verk hennar er að finna í safneignum helstu listasafna landsins, auk stofnana, fyrirtækja og einkaaðila hér á landi og erlendis. Erla hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars unnið samkeppni um listaverk fyrir Ráðhús Reykjavíkur og tvívegis hlotið styrk frá Pollock-Krasner Foundation í Bandaríkjunum.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page