top of page

Elín Elísabet Einarsdóttir: Vé

508A4884.JPG

fimmtudagur, 15. október 2026

Elín Elísabet Einarsdóttir: Vé

Listasalur Mosfellsbæjar, Opnun laugardaginn 17. október kl 14:00 - 16:00

Á sýningunni kynnir Elín Elísabet ný olíumálverk frá árinu 2026 þar sem hún veltir fyrir sér tengslum mannsins við staði sem sífellt færri verða vitni að. Í verkunum mætast minningar, nærvera og fjarvera og vakna spurningar um það sem staðir geyma, jafnvel þótt spor mannsins hverfi.

Elín vinnur að mestu utandyra og einkennist sköpunarferli hennar af djúpri athygli og trausti á tilviljunina. Hún vinnur með olíumálverk, ljóð og fundinn efnivið þar sem umhverfið og augnablikið fá að hafa áhrif á tilurð verkanna. Í málverkunum birtist næmni fyrir því sem er hverfult og því sem verður eftir.
Staðir muna menn og menn staði. Eyðurnar bera vitni um það sem hefur gleymst.

Elín Elísabet (f. 1992) nam teikningu við Myndlistaskólann í Reykjavík og myndlist við Listaháskóla Íslands. Í listsköpun sinni vinnur hún á mörkum málverks, ljóðlistar og fundins efniviðar, með áherslu á athugun, tilviljun og tengsl mannsins við umhverfi sitt.

Linkur á viðburðin https://fb.me/e/54X1QuL73

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page