top of page

Elín Elísabet Einarsdóttir: Áning / Verse

508A4884.JPG

fimmtudagur, 12. mars 2026

Elín Elísabet Einarsdóttir: Áning / Verse

Þula Hafnartorg
Bryggjugata 6, 101 Reykjavík

Sýningartímabil: 14.03 - 25.04. 2026

Sýning Elínar Elísabetar Einarsdóttur, Áning / Verse, næstkomandi laugardag 14.mars milli 16-18 í
Þulu Hafnartorgi.

-------
Áning

Leyf mér að æja
með bakið upp að mynstruðum steini
á stað milli staða
þræða fingur milli stráa
og hlusta

þau eiga við mig erindi

í hverju erindi er nýr tónn
nýr heimur steinsnar frá þessum

augnaráð mætir augnaráði
klappir skófum
enni gagnauga
mosi mold

leyf mér stutta viðdvöl
hér í jaðarsjóninni
áður en ég legg aftur í hann
tilbúin í næsta hring

-Elín Elísabet Einarsdóttir

-
Elín Elísabet Einarsdóttir (f. 1992) málar einkum andlit og landslag í nærmynd. Hún vinnur gjarnan utandyra á afskekktum stöðum þar sem hún situr tímunum saman og dvelur við smáatriði landslagsins af athygli. Verk hennar má lesa sem rannsókn á tengslum manns og staðar, en Elín velur sér staði sem hún tengist persónulega í gegnum ættir eða eigin reynslu. Skrif eru einnig mikilvægur þáttur í list Elínar og brot úr ljóðum hennar birtast gjarnan á milli pensilfaranna.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page