Elín Anna Þórisdóttir: Ommeletta -hljómar vel-

þriðjudagur, 10. mars 2026
Elín Anna Þórisdóttir: Ommeletta -hljómar vel-
Gallerí Grótta
Eiðistorg 11, 170 Seltjarrnares
Opnun: 12. mars kl. 17:00
Sýningartímabil: 12.03 - 11.04. 2026
Ommeletta
-hljómar vel-
Egg, laukur, salt, pipar og paprika í réttum hlutföllum.
Hún er hversdagsleg. Ber fallega liti, hljómar vel og er steypt í hringform.
Litir [í reitum] takast á, erta sjóntaugina, eða sitja í góðu samlæti, (stundum dansa þeir). Sumir litir
þenjast út vilja taka yfir meðan aðrir dragast saman, inn í sig sjálfa. Augað ferðast fram og til baka, í
hringi - um flötinn. Flakkar eftir samfelldri línu, sér sífellt nýjar samsetningar. Stundum er form falið
inn í myndinni eða leitar að nýju samhengi.
Í óperunni L’omelette à l’empereur „Omeletta handa keisaranum“ eftir Charles Lecocq kemur keisari
óvænt á sveitakrá og vill fá að borða. Uppi verður fótur og fit, ekki er mikið til í kotinu nema nokkur
egg. Nú þarf að redda málum, fela fátækt og klúður. þú neitar ekki keisaranum um mat. Er hægt að
bjarga heiðrinum með því að gera góða ommelettu?
Elín Anna Þórisdóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2004, hún bætti við
sig gráðu í kennslufræðum árið 2018 frá sama skóla og hefur einnig lokið diplómu í keramik 2016.
Þetta er sjötta einkasýning Elínar. Hún sýnir sjaldan og markaðsmálin hafa legið í dvala, enginn mætt
á skrifstofuna í langan tíma. Henni líður vel með að starfa á jaðri sýnileikans, drifin áfram af innri
þörf, við málun og tilraunir þótt þær neiti oftast að verða að afurð. Hún heldur leitinni áfram með
kímnina að vopni þótt engin augljós ástæða sé til staðar.
Opið virka daga 10- 18 (nema föstudaga 10-17),
laugardaga 11- 14.
Öll velkomin.
