top of page

Einkasýning Heu Hsu : Segulberg

508A4884.JPG

fimmtudagur, 17. september 2026

Einkasýning Heu Hsu : Segulberg


SÍM gestavinnustofur, ásamt Finnsku menningarstofnuninni, bjóða ykkur innilega velkomin á sýninguna
Magnetite, eftir gestalistamann SÍM, Heu Hsu. Sýningin opnar á jarðhæð Seljavegar 32, fimmtudaginn
24. september, kl. 17 og er einungis opin við þetta tækifæri.

Magnetite er hljóðinnsetning í vinnslu sem fjallar um það þegar hefðbundin leiðsagnarkerfi bregðast. Þótt
ævafornt segulsvið jarðar sé óhnekkjandi, geta segulfrávik af náttúrunnar völdum ollið því að áttavitanálin
skekkist. Á þriggja mánaða vinnustofudvöl sinni hefur Heu Hsu rannsakað segulmagn íslensks bergs,
bæði á vinnustofu sinni hjá SÍM og á vettvangsferðum með jarðeðlisfræðingnum Elisu Piispa sem
sérhæfir sig í fornsegulmögnun. Hún safnaði bergsýnum, mældi segulsviðsstyrk hraunstraumanna og
heimsótti borkjarnamiðstöð á Austurlandi.

Sýningin veitir innsýn í yfirstandandi listrannsókn Heu á hljóðrænum frásögnum segulbergs. Grjótið er
virkjað með segulmögnun og hreyfist ýmist óútreikanlega eða liggur grafkyrrt. Innsetningin veltir því upp
hvernig vissa verður að óvissu þegar viðmiðunarpunkturinn fer á flakk.

Hljóðáhugi Heu Hsu’s kviknaði á sögufrægum jazz- og hljómkaffihúsum í Japan sem urðu henni
innblástur að handgerðri bók, Sound Cronicle. Eftir áratug í Tokyo flutti hún til Helsinki og gerir nú
annars konar tilraunir með hljóðfrásagnir. Verk Heu hafa þróast yfir í hreyfifræðilega skúlptúra,
innsetningar og gjörninga. Hún einbeitir sér að staðbundnum verkum og sambandi hljóðs, efnisleika og
Menningarlandslags.

Hljóðverk hennar hafa verið til sýnis á Rikhardinkatu bókasafninu (FI), House of Text (FI), Wave Field
Synthesis Festival (NL), Birmingham Electroacoustic Sound Theatre (UK), and Ústí nad Labem National
House (CZ).

Sýningarstjóri er Ástríður Jónsdóttir

Með stuðningi frá Finnsku menningarstofnuninni

Mynd: Petja Heiskanen

https://fb.me/e/7Qan3XSJf

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page