Einkasýning Auðar Ómarsdóttur, KASBOMM í Þulu
miðvikudagur, 13. september 2023
Einkasýning Auðar Ómarsdóttur, KASBOMM í Þulu
Sýning Auðar Ómarsdóttur, KASBOMM í Þulu Gallery, opnar nú laugardaginn 16. september klukkan 17:00 og stendur til 15.október.
Verkin á sýningunni KASBOMM endurspegla vinnuferli Auðar síðastliðna mánuði sem hefur litast af því ástandi að vera barnshafandi. Sýningin er að mörgu leyti frásögn af því hvernig óléttan hefur haft áhrif á listamanninn til þess að þreifar fyrir sér í nýjum upplifunarheimi og hvernig hún færir hann í myndrænt form. KASBOMM er fjórtánda einkasýning Auðar en hún hefur verið virk í sýningarhaldi hérlendis og erlendis síðastliðinn áratug.
Auður Ómarsdóttir (f.1988) vinnur myndlist sína einna helst í málverki, en vinnur einnig mikið í blandaða miðla, þar sem má nefna skúlptúr, ljósmyndun, vídjó og teikningu. Líkamleiki og eftirtektarsemi spila stóra rullu í sköpunarferli hennar. Verk Auðar eru iðulega á einn eða annan hátt sjálfsævisöguleg en innblásturinn kemur jafnan frá persónulegum atburðum, þáttum í nærumhverfi eða af internetinu sem Auður yfirfærir í myndrænt tungumál sitt. Verk Auðar fjalla jafnan um þá tilraun til þess að knýja fram harmóníu í andstæðum. Hún vinnur oft meðvitað þvert á stíla en hún álítur þversögnina frumafl í vinnuferli sínu, þar sem hún upplifir veröldina þversagnakennda og tilviljanakennda. Auður hlaut BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2013 og MA gráðu frá Listaháskólanum í Bergen 2021. Auður var tilnefnd til hvatningarverðlauna Myndlistarverðlauna Íslands 2018 og situr í stjórn Nýlistasafnsins. Auður býr og starfar í Reykjavík.