Einhverfugreining - SVAVS í Litla Gallerý

miðvikudagur, 28. maí 2025
Einhverfugreining - SVAVS í Litla Gallerý
Sýningarviðburður 5. - 8. Júní í Litla Gallerý, Strandgötu 19, 220 Hafnarfirði.
"Mér finnst ég eiginlega ekki hafa gert neitt á síðustu önn í skólanum (lhí) en það gerðist samt svo ótal margt.
Ég byrjaði í gjörningakúrs sem mig langaði alls ekki að fara í en það var bara ekkert annað í boði. Þar steig ég á ,,svið” og gerði hluti sem ég hefði að öðrum kosti aldrei gert.
Smátt og smátt opnuðust nýjar dyr fyrir mér sem ég hélt að væru bara lokaðar fyrir manneskju eins og mig en sennilega hafði rétti tíminn, rétta umgjörðin og eða rétta fólkið aldrei verið til staðar. Þar til nú.
Sýn mín á lífið og framtíðina skekktist og stefnir nú í aðra átt og mamma hefur aldrei verið eins stolt af mér.
Út af áskorunum síðasta skólaárs neyddist ég til að líta inn á við. Ég er einhverf og það getur verið rosalega hamlandi en einhverfan mín er líka minn mesti og besti styrkleiki."
Verkin á þessari sýningu eru afrakstur rannsóknarvinnu sjálfs míns og einhverfu minnar á síðasta skólaári í myndlist í Listaháskóla Íslands.
Sýningaropnun verður fimmtudaginn 5. júní frá 18:00-20:00 og allir velkomnir!
Aðrir opnunartímar:
Föstudagur 6. júní 13:00 - 18:00
Laugardagur 7. júní 12:00 - 16:00
Sunnudagur 8. júní 14:00 - 17:00
Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefndHafnarfjarðarbæjar.
English
"I don't feel like I've really done anything during the last semester at school (lhí) but yet so many things happened.
I enrolled in a performance course that I didn't want to go to at all but there was just nothing else available. There I stepped on "stage" and did things that I would have never done otherwise.
Little by little, new doors opened for me that I thought were just closed to a person like me but the right time, right setting and or the right people had possibly never been there. Until now.
My view of life and the future was distorted and I'm now heading in a different direction and my mother has never been more proud of me.
The challenges of last school year forced me to look inward. I am autistic and it can be really limiting but my autism is also my greatest and best strength."
The works in this exhibition are the result of research work on myself and my autism during my last year of art at the Iceland Academy of the Arts.
Exhibition opening is Thursday June 5th from 18:00-20:00 and all are welcome!
Other opening hours:
Friday June 6th 13:00 - 18:00
Saturday June 7th 12:00 - 16:00
Sunday June 8th 14:00 - 17:00
The event is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjordur.