Einar Falur Ingólfsson: Varla lifandi fyrir artist – Hugsað til Kristjáns Helga

fimmtudagur, 14. maí 2026
Einar Falur Ingólfsson: Varla lifandi fyrir artist – Hugsað til Kristjáns Helga
Föstudaginn 15. maí kl. 17 opnar sýning Einars Fals Ingólfssonar Varla lifandi fyrir artist – Hugsað til Kristjáns Helga í Gallerí Úthverfu á Ísafirði.
15.5 – 14.6 2026
Heiti sýningarinnar er sótt í sendibréf sem myndlistarmaðurinn Kristján H. Magnússon (1903-1937), sem fæddist og ólst upp á Ísafirði, skrifaði 19 ára gamall frá Bandaríkjunum þar sem hann var í myndlistarnámi. Kristján sá þá ekki fyrir sér að snúa heim til Íslands að starfa sem listamaður, þar sé „varla liandi fyrir artist“, þótt, eins og hann bætir við, landið sé „ríkt af landslögum sem gaman væri að mála“.
Eins og fram kemur í upplýsandi bók Einars Fals um ævi og störf Kristjáns Helga sem kom út í fyrra, Listamaðurinn sem gleymdist, þá átti Kristján þó eftir að snúa heim til Íslands og mála af kappi þessi „landslög“ meðan honum entist aldur til en Kristján lést aðeins 34 ára gamall. Kristján var að ýmsu leyti frumkvöðull í hópi íslenskra myndlistarmanna. Hann var fyrstur til að ljúka myndlistarnámi í Bandaríkjunum, fyrstur til að halda einkasýningar á verkum sínum í erlendum stórborgum og líka fyrstur til að ferðast um landið að vetrarlagi sérstaklega til að mála myndir. Á sýningunni í Gallerí Úthverfu kallast Einar Falur í nýjum ljósmynda- og vídeóverkum á við vetrarmyndir eftir Kristján frá Ísafirði. Á sýningunni verða þrjú olíumálverk sem Kristján málaði fyrir vestan veturna 1930 og 1931, verk sem snúa aftur heim 95 árum eftir að þau voru máluð. Málverk Kristjáns á sýningunni eru í einkaeigu og hafa ekki sést á opinberum sýningum síðan þau voru máluð.
Einar Falur (f. 1966) er bókmenntafræðingur að mennt og með MFA-gráðu í ljósmyndun frá School of Visual Arts í New York. Undanfarna tvo áratugi hefur hann verið ötull við sýningarhald og bókagerð en sýningar með verkum hans hafa meðal annars verið settar upp í Þjóðminjasafni Íslands, Listasafninu á Akureyri, Listasafni ASÍ, Listasafni Reykjanesbæjar, Hafnarborg, Scandinavia House í New York og Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Verk eftir hann eru í eigu helstu listasafna landsins.
Tveimur dögum fyrir opnun sýningarinnar í Gallerí Úthverfu, miðvikudaginn 13. maí, mun Einar Falur fjalla um ævi og feril Kristjáns H. Magnússonar í fyrirlestri í Safnahúsinu á Ísafirði, kl. 17.
