Egill Logi Jónasson: Eins og Bíll í Göngugötu

fimmtudagur, 5. nóvember 2026
Egill Logi Jónasson: Eins og Bíll í Göngugötu
Leyni, Hamnarstræti 65, Akureyri opnun fimmtudaginn 5. nóvember kl 20:00
Eins og bíll í Göngugötu
Ég mæti í partí
eins og bíll á göngugötu
Segi alltof langa sögu og held svo fyrir þér vöku
Fokka í endurvinnslunni
set matarleifar í plastið
Kaupi skemmtara í Hirðinum
og spila svo á draslið
Egill Logi Jónasson (f. 1989) býr og starfar á Akureyri. Hann er mynd-, tónlistarmaður og peningakall. Einnig þekktur undir listamannsnafninu Drengurinn Fengurinn. Hann lauk námi frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2012 og BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2016.
Egill vinnur á mörkum ólíkra listforma og nýtir meðal annars málverk, tónlist, myndbönd, skúlptúra og gjörninga í listsköpun sinni. Verk hans einkennast af frumlegri nálgun, tilraunagleði, húmor og óhefðbundinni tjáningu.
Hann er virkur þátttakandi í sjálfstæðu listalífi Akureyrar og einn af lykilaðilum listahópsins Kaktus í Listagilinu, þar sem hann hefur tekið þátt í að skapa vettvang fyrir sjálfstæða og óháða listamenn. Samhliða myndlistinni hefur hann verið afar afkastamikill í tónlistarsköpun og gefið út fjölda hljómplatna.
Árið 2025 var Egill útnefndur bæjarlistamaður Akureyrar fyrir framlag sitt til menningarlífs bæjarins og fjölbreytta, framsækna listsköpun.
