top of page

Eggert Pétursson: Þúsundblómabreiða.

508A4884.JPG

þriðjudagur, 27. október 2026

Eggert Pétursson: Þúsundblómabreiða.

Listasafni Íslands, opnun föstudaginn 6. nóvember kl 17:00 - 19:00
Sýningin stendur yfir 06.11 - 14.02 2027

Flóran á norðurslóðum myndar kjarnann í listsköpun Eggerts Péturssonar. Hann sækir í
djúpa þekkingu sína á íslenskum plöntum og byggir upp myndheim sem er í senn
grasafræðilega nákvæmur og ímyndaður, jarðbundinn og upphafinn. Eggert vinnur út frá
stærðarhlutföllum harðgerðra blóma, burkna og mosa, sem vaxa við krefjandi skilyrði
norðlægs loftslags, og birtir okkur stórkostlega heima í málverkum sínum. Þá byggir hann
yfirborðið upp í lögum svo að myndflöturinn virðist allt að því taka á sig yfirbragð sjálfs
landslagsins.

Titill sýningarinnar, Þúsundblómabreiða, vísar til þeirrar blómadýrðar sem einkennir verk
Eggerts og tengir þau jafnframt við langa sögu blóma í myndlist og hönnun. Á sýningunni er
sjónum einkum beint að málverkum sem Eggert hefur unnið á síðustu fimmtán árum, eftir
yfirlitssýningu listamannsins í Listasafni Reykjavíkur árið 2007. Á þessu tímabili má greina
vissa áherslubreytingu í átt að andlegri eða dulrænni nálgun sem tengist meðal annars
reynslu Eggerts af sýningarstjórn árið 2019, þegar hann setti saman sýningu á
blómateikningum og málverkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals í Listasafni Reykjavíkur.

Eggert Pétursson (f. 1956) er einn ástsælasti listamaður landsins. Hann fæddist í Reykjavík
og býr þar og starfar. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk
framhaldsnámi við Jan van Eyck Academie í Maastricht árið 1981. Þótt málverk hans séu
hlutbundin liggja rætur listsköpunar hans í Fluxus-hreyfingunni og hugmyndalist sjöunda og
áttunda áratugarins. Verk hans kallast jafnframt á við pósthúmanískar og vistfræðilegar
áherslur samtímans.

Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Listasafnsins í Turku í Finnlandi.
Sýningarstjórar eru: Kari Immonen, Pari Stave og Selina Kiiskinen.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page