top of page

Ef þú horfir nógu lengi - Elín Elísabet Einarsdóttir

508A4884.JPG

þriðjudagur, 8. ágúst 2023

Ef þú horfir nógu lengi - Elín Elísabet Einarsdóttir

Elín Elísabet opnar málverkasýningu í Hafnarhúsinu, Borgarfjarðarhöfn, 10. ágúst kl 17:00. Sýningin verður opin daglega frá 12:00-17:00 til 1. sept.

Ég var beðin um að mála mynd af álfadrottningunni í Álfaborginni. Ég er búin að vera að hugsa um það í tvö ár. Ég er vön að mála það sem ég sé – horfa stíft og mála svo. Ég hef aldrei séð álfkonuna.

Ef ég horfi nógu lengi hlýt ég að sjá hana. Ef ég sit í Álfaborginni og horfi nógu stíft, þá seytlar kannski eitthvað af henni inn í málverkin.

Ætli það sé ekki það sem ég er búin að vera að gera öll þessi ár sem ég hef vanið komur mínar á Borgarfjörð: horfa aðeins lengur og reyna að sjá hvað það er sem dregur mig hingað trekk í trekk.

Ef ég horfi nógu lengi sé ég hana kannski, eða held áfram að horfa út í hið óendanlega án þess að sjá hana nokkurn tímann. Hvort tveggja álitlegir kostir. Ég hef verið að horfa í 12 ár og er enn að sjá eitthvað nýtt: í andlitum fólks, í frásögnum þess, örnefnunum, vindáttinni, fuglunum. Í Álfaborginni.

Elín Elísabet (1992) er myndlistarmaður og teiknari. Hún ólst upp í Borgarnesi en kom fyrst á Borgarfjörð eystri árið 2011 og hefur ekki getað hætt því síðan. Hún gaf út teiknuðu myndabókina Onyfir um Borgarfjörð árið 2016 og hélt í kjölfarið sýningu í Fjarðarborg. Elín stóð ásamt Rán Flygenring fyrir lundaveldi í nafni Nýlundabúðarinnar í Borgarfjarðarhöfn sumrin 2020-21.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page