top of page

Dunce Magazine útgáfuhóf í Y gallery

508A4884.JPG

fimmtudagur, 9. október 2025

Dunce Magazine útgáfuhóf í Y gallery

Hamraborg 12, 200 Kópavogur, Iceland
09.10.2025, 17-19

Verið hjartanlega velkomin á útgáfuhóf og opnun Dunce Magazine í Y gallery. Dunce kemur út í fjórða skipti í tengslum við Sequences Real-Time Art Festival. Útgáfu tímaritsins verður fagnað í Y gallery þar sem opnuð verður sýning á verkum eftir listamenn sem fram koma í blaðinu. Sérstakur kafli er unninn í samstarfi við Sequences og er tileinkaður þeim listamönnum sem halda gjörning á hátíðinni.

Dunce Magazine er sjálfútgefið tímarit undir ritstjórn danshöfundarins Sóleyjar Frostadóttur og hannað af Helgu Dögg Ólafsdóttur. Dunce liggur á mörkum myndlistar, dans- og gjörningalistar. Listamenn sem koma fram í blaðinu vinna með hugmyndir um líkamleika; jarðbundinn og dreymandi líkama. Blaðið er prentað af myndlistarmanninum Sigurði Atla Sigurðssyni í risograph í takmörkuðu upplagi.

Listamenn sem koma fram í blaðinu:
Adrienne Herr, Alicia Luz Rodríguez, Carlo Canún, Felix Urbina Alejandre, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Halla Þórðardóttir & Saga Kjerúlf Sigurðardóttir, Helle Siljeholm, Hildur Elísa Jónsdóttir, Hugo Llanes, Lucky 3, Maija Mustonen & Hrefna Lind Lárusdóttir, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Rósa Ómarsdóttir, Steina Vasulka.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page