Dodda Maggý, Elegy

miðvikudagur, 26. ágúst 2026
Dodda Maggý, Elegy
Fréttatilkynning
26. ágúst 2026
Verk eftir íslenska myndlistar- og tónlistarmanninn Doddu Maggý vígt í nýjum almenningsgarði í Uppsala, Svíþjóð.
Laugardaginn 29. ágúst 2026 verður verkið Elegy eftir myndlistar- og tónlistarmanninn Doddu Maggý vígt í nýbyggðum almenningsgarði sem heitir Lyrikparken í Uppsala, Svíþjóð. Verkið er hljóðskúlptúr og vídeóverk sem mun standa varanlega í opinberu rými.
Verkið byggir á sögu hverfisins sem nefnist Ulleråker en þar var fyrsta geðsjúkrahús Svíþjóðar. Með verkinu er leitast við að heiðra minningu fólksins sem lifði og dó í Ulleråker.
Verkið samanstendur af hringlaga viðarbekk sem virkar eins og hátalari en þar hljómar tónverk samið fyrir bassaflautu, þverflautu og piccaloflautu. Einnig má sjá vídeóverk úti í náttúrunni í gagnauknum veruleika (e. augumented reality) gegnum snjalltæki.
Dodda Maggý vinnur á mörkum myndlistar og tónlistar. Verk hennar fjalla oft um innri víddir drauma, minninga og ímyndunaraflsins.
