top of page

Djúpavík: Undirheimar vatnsins - The Factory

508A4884.JPG

miðvikudagur, 8. júní 2022

Djúpavík: Undirheimar vatnsins - The Factory

The Factory listasýning 2022
Undirheimar vatnsins


Í þessari þverfaglegu sýningu sameinar The Factory fjölbreyttan hóp sjónlistamanna meðal annars
á sviði textíls, höggmynda, myndbandslistar, hljóðlistar, myndlistar, ljósmynda, innsetninga ofl.
Þessi nálgun skapar fjölbreytta og öfluga sýningu, sem nær til breiðs hóps gesta.
Ætlunin er að (endur)skapa The Factory, yfirgripsmikla listasýningu í hinu afskekkta þorpi
Djúpavík. Með því að tengja saman horfinn sjávarútveg og samtímalist mun gamla
síldarverksmiðjan í Djúpavík fá aðlaðandi og nútímalegri blæ og persónugerast í löngu liðnum
tíma fólksins sem lifði þar og starfaði. Listaverkin vísa til rýmisins og skynjunar á umhverfinu í
Djúpavík og á Íslandi í heild sinni og leitast við að skapa rými fyrir andstæður, fortíð og nútíð -
stað til að anda og leyfa sér að vera til.

Undirheimar vatnsins
Vatnið í okkar skilningi: Hafið, fossinn, regndroparnir, vatnaniðurinn, rakinn, snjórinn. Það má
finna allar þessar birtingamyndir vatns inní og í kringum gömlu síldarverskmiðjuna í Djúpavík. Það
safnast fyrir í jarðveginum undir okkur, seytlar niður veggi og liggur ofan á þakinu. Ímyndaðu þér
núna, sama vatnið undir hvaða yfirborði sem er, sama vatnið og er inní líkama þínum. Á
ferðalagi sínu tekur vatnið stöðugum breytingum, það myndar nýjar samsetningar með aðra
þýðingu. Efnisþættir vatns. Hvað hafa þeir að geyma? Hvert fara þeir í raun og veru?
Með þemanu vatn og haf, dregur sjöunda sýning The Factory að sér mennskar og ómennskar
verur sem lifa bæði ofan og neðan sjávar. Listaverkin eru túlkuð á vatnskenndan og glitrandi hátt
- umvafin þunglamalegri og myrkri steypu verksmiðjunarinnar.

Frá 11 júní til 11 september, 2022
Opið daglega 10.00 -18.00


Listamenn
Aniara Omann (DK)
Alexis Brancaz (FR)
Björn Jónsson (IS)
Christalena Hughmanick (US)
Christine Nguyen (US)
Halla Birgisdóttir (IS)
Heidi Zenisek (US)
Heinz Kasper (AT)
Iða Brá Ingadóttir (IS)
Kate Robinson (US)
Melkorka Þorkelsdóttir (IS)
Sarah Finkle (US)
Simon Lambrey (FR)


Haldið af Hótel Djúpavík
Sýningarstjóri - Emilie Dalum
Hafa samband - emilie@thefactory.is
facebook.com/thefactorydjupavik/
instagram.com/djupavikart/
Styrktaraðilar: Hótel Djúpavík, Vestfjarðastofa, Sóknaráætlun Vestfjarða og Byggðastofnun.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page