Didda H Leaman: Innilega

fimmtudagur, 14. maí 2026
Didda H Leaman: Innilega
Gallerí Göng
Háteigsvegi 27-29
105 Reykjavík
Opnun föstudaginn 15. maí, 16.00 -18.00
Opnunartímar þriðjud. -fimmtud. 10.00-16.00
Föstud. 10.00-15.00, laugard.og sunnud. 13.00-16.00
Á sýningunni eru verk unnin á pappír með bleki, tússi og klippi.
Akrýlmálverk á striga. Þrívíð verk úr pappír sem teiknað er á með tvinna, auk þess sem blek er málað beint á glervegg ganganna.
Hugsanabúbblur og ský skarast, breiða úr sér og rofna sundur. Hugsanabúbblur eru ímynduð, teiknuð tákn sem við þekkjum úr teiknimyndasögum og höfum lært að lesa í. Þar er skilaboðum komið á framfæri til lesandans um hvað persónur í sögunni eru að hugsa eða hvernig þeim líður. Ský sjáum við daglega með augunum.
Náttúruleg form og dvalarstaðir undanfarinna ára eru uppspretta, séð með auga hugans og skynjunarinnar lúta þau eigin lögmálum.
Hugsanamynstur eru skoðuð og samskipti hugsana.
Hvað hugsar þú og hvað hugsa ég?
Hugsum við það sama, eða er þetta ekki hugsun, heldur skynjun eða tilfinning?
Eru ógreinanleg öðruvísi öfl áhrifavaldar sem koma hugmyndum að?
Didda er með MFA frá Slade School of Fine Art og
M.Art Ed. Kennslufræði Sjónlista, L.H.Í.
Hún hefur verið búsett og dvalið á ýmsum stöðum seinustu áratugi
m.a. London, Nepal, Barselóna, Novi Sad, Hólmavík og Reykjavík.
