Dagur Benedikt Reynisson: Sjónvillur í náttúru

fimmtudagur, 18. júní 2026
Dagur Benedikt Reynisson: Sjónvillur í náttúru
Við bjóðum ykkur velkomin á nýjustu einkasýningu Dags Benedikts Reynissonar “Sjónvillur í náttúru” sem opnar á föstudaginn 19. júní kl 17:00-19:00 í Hermu, Hverfisgötu 4.
(Sérstök forsýning verður haldin 17. júní kl. 14:00-17:00, þar sem gestum gefst tækifæri til að skoða verkin áður en sýningin opnar formlega.)
Þetta er önnur einkasýning Dags á síðustu tveimur árum. Hann lauk BA-prófi í myndlist árið 2023 og hefur síðan sýnt verk sín reglulega, bæði á Íslandi og erlendis.
Dagur hefur í gegnum tíðina unnið að fjölbreyttum verkum sem byggja á sjónblekkingum og rannsaka hvernig þær hafa áhrif á skynjun okkar og í hvaða mynd þær geta komið fram. Til þess notar hann fjölbreytt form, mynstur og liti sem spila saman á óvæntan hátt.
Verk Dags sýna hvernig sjónblekkingar birtast í náttúrunni og hvernig þær geta verið ýmist huldar eða sýnilegar eftir því hvernig horft er á umhverfið. Í verkunum má greina mynstur og form sem byggja á ferningum, hringjum og línum, en einnig abstrakt og flóknari útfærslur.
Í nýjustu verkunum sækir Dagur innblástur í náttúruna. Mynstur laufa, steina og vatns verða að útgangspunkti fyrir rannsókn á því hvernig mynstur geta verið bæði augljós og dulin. Með áherslu á litrófið og samspil lita skapa verkin nýjar leiðir til að sjá tengsl og form sem ekki eru endilega augljós við fyrstu sýn.
Dagur vonar að verkin gefi áhorfandanum tækifæri til að skoða og meta eigin skynjun og hvetji til umhugsunar um hvernig við greinum og túlkum sjónblekkingar í daglegu lífi.
Opnunartímar / Opening times:
17.06: 14-17
18.06: Closed
19.06: 17-19 Opening Party
20.06: 13-17
21.06: 13-17
22-23-24.06 Closed
25.06: 13-17
26.06: 14-18
27.06: 13-17
28.06: 13-17"
English
We welcome you to Dagur Benedikt Reynisson's latest solo exhibition "optical illusions in Nature" which opens on Friday June 19th at 17:00-19:00 in Herma, Hverfisgata 4.
(A special preview will be held on June 17 from 14:00–17:00, offering visitors an opportunity to view the works before the official opening.) This is Dagur’s second solo exhibition in the past two years. He graduated with a BA in Fine Arts in 2023 and has since exhibited his work regularly, both in Iceland and abroad.
Throughout his practice, Dagur has created a diverse body of work based on optical illusions, exploring how they affect our perception and the different forms they can take. To achieve this, he employs a wide range of shapes, patterns, and colours that interact in unexpected ways.
Dagur’s works demonstrate how optical illusions appear in nature and how they can be either hidden or visible depending on how we observe our surroundings. His work incorporates patterns and forms based on squares, circles, and lines, as well as more abstract and complex compositions. In his most recent works, Dagur draws inspiration from nature. Patterns found in leaves, stones, and water serve as a starting point for exploring how natural structures can be both apparent and concealed. Through an emphasis on the colour spectrum and the interplay of colours, the works create new ways of seeing connections and forms that may not be immediately visible at first glance.
Dagur hopes the works offer viewers an opportunity to reflect on and reconsider their own perception, encouraging them to think about how we recognise and interpret optical illusions in everyday life.
