D51 Sadie & Jo - Allt sem ég vil segja þér

miðvikudagur, 28. maí 2025
D51 Sadie & Jo - Allt sem ég vil segja þér
Sýningarröðin D-salur snýr aftur þar sem upprennandi myndlistarmönnum á Íslandi er boðið að halda sína fyrstu einkasýningu á safni.
Fimmtudaginn 29. maí kl. 17.00 opnar sýningin Allt sem ég vil segja þér í D-sal Hafnarhúss.
Sadie Cook og Jo Pawlowska sýna nýja innsetningu þar sem þúsundir ljósmynda og kvikra mynda taka á móti gestum. Myndefnið inniheldur sviðsetta drauma, bjöguð vídeó, skjáskot af samtölum á síðkvöldum, pixlaðar sjálfur og læknaskýrslur. Hvert verk endurspeglar leit listamannanna að ummerkjum lifaðrar reynslu á eigin líkama. Sýningin byggist á möguleikanum að geta verið til fyrir utan áskapaða tvíhyggju.
Alltumlykjandi tvíhyggja sem sundrast og sameinast á ný.
Samstarf Sadie Cook og Jo Pawlowska spratt upp af því að hvort um sig var með snoðkoll. Það þróaðist áfram í samtölum um hár, sjálfið, sjálfsmynd, uppbrot línulegrar framvindu og internetið. Listrænt samkrull hófst fyrir alvöru einn sólskinsdag í maí 2024 þegar Jo tók fyrsta skammtinn af testósteróni á meðan Sadie dýfði fótunum í slím og smellti af mynd á bleika plastmyndavél.
Sýningarstjóri er Björk Hrafnsdóttir
Um listamennina:
Jo Pawlowska er listamaður og sýningarstjóri. Í þverfaglegri listsköpun sinni skapar Jo náin, vangaveltukennd en oft á tíðum leikræn verk þar sem stafræni heimurinn, stafrænar leifar, endurhugsaðir líkamir og hinn efnislegi veruleiki mætast og fléttast saman. Frá árinu 2016 hefur Jo verið hluti af listadúettinum Brokat Films, ásamt málaranum og þrívíddarhönnuðinum Sasa Lubińska. Hán býr og starfar á Íslandi. Árið 2024 hlaut hán listamannalaun frá Rannís, Rannsóknarmiðstöð Íslands.
Sadie Cook er listamaður sem vinnur á mörkum ljósmyndunar og innsetninga. Hán hefur sýnt verk sín bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, og ljósmyndir háns eru hluti af safneign bókasafna MoMA, Tate og Met. Sadie útskrifaðist frá Yale, hlaut Fulbright-styrk og hefur starfað sem gestakennari við Yale, Harvard og NYU. Sadie býr og starfar í Reykjavík, kennir við Myndlistaskólann í Reykjavík og Ljósmyndaskólann, rekur sýningarrýmið Gallery Kannski, og situr í stjórn Nýlistasafnsins.
Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007 og hafa yfir fimmtíu listamenn tekið þátt. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.