top of page

Claire Paugam: Memory Crash

508A4884.JPG

fimmtudagur, 12. mars 2026

Claire Paugam: Memory Crash

Gallery Port
Hallgerðargata 19-23, 105 Reykjavík

Sýningartímabil: 14.03 - 04.04. 2026

Verið velkomin á opnun einkasýningar Claire Paugam, MEMORY CRASH, í Gallery Port, laugardaginn 14. mars, kl. 15:00 – 17:00.

Memory Crash tekst á við villandi landslag minninga — þar sem fortíð og nútíð rekast saman og mörkin milli andlegra og líkamlegra rýma leysast upp. Á þessum persónulega könnunarleiðangri og rannsókn á því hvernig minnið mótar skynjun sýnir listakonan baráttu sína við að sætta yfirflæði andlegra og raunverulegra mynda, og spyr krefjandi spurninga um hlutverk ljósmyndunar í því að fanga það sem er í raun ómögulegt að fanga.

Claire Paugam er listakona, búsett í Reykjavík. Verk hennar spanna ljósmyndun, uppsetningar og skúlptúra, og takast á við fagurfræðilegar, hugfræðilegar og pólitískar spurningar í gegnum myndir, með tilliti til bæði sköpunar- og framleiðsluferlis þeirra og efnisleika utan hefðbundinna sýningarforma. Ferill hennar á sér djúpar rætur í félagslega áhrifamiklum og persónulegum hugmyndum um hlutverk kvenna og umhverfisvernd, umfram tóm orð, og byggir á tilraunakenndum og skálduðum þáttum sem fjarlægja sig frá lýsandi, átakakenndum eða fræðandi málflutningi, og kýs frekar að höfða til mannlegrar næmni og virðingar gagnvart öðrum sem leiðarljósi í lífinu.

Sýningin stendur yfir til 4. apríl og er Gallery Port er opið miðviku- til föstudags milli 12–17 og laugardaga frá 12–16. Einnig eftir samkomulagi.

Allar nánari upplýsingar um sýninguna og verkaskrá hennar má nálgast í skilaboðum og hjá info@galleryport.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page