Brynhildur Þorgeirsdóttir : Frá vinnustofu til vinnustofu

þriðjudagur, 13. október 2026
Brynhildur Þorgeirsdóttir : Frá vinnustofu til vinnustofu
Hlöðuloftið korpúlfsstöðum, Opnun laugardaginn 17. október kl 15:00
Listamannaspjall sunnudaginn 18. október kl 15:00
Brynhildur Þorgeirsdóttir opnar Heimildarsýningu á Korpúlfstöðum þann 17. október.
Þar gefst einstakt tækifæri til að skyggnast inn í heim Brynhildar og kynna sér störf myndhöggvara. Brynhildur mun vinna að nýjum verkum á meðan á sýningunni stendur og gestum býðst að koma og spjalla við hana á meðan hún vinnur.
Metnaðarfull dagskrá varpar ljósi á allar hliðar listsköpun myndhöggvarans allt frá hugmynd að veruleika. Það verður m.a. boðið upp á sögustundir, glerblástur og heimsókn á Vinnustofu Brynhildar.
Skúlptúrarnir á sýningunni spanna allan ferilinn frá 1983 – 2026
Brynhildur Þorgeirsdóttir (f. 1955) nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1974 -78 og stundaði síðan framhaldsnám við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam og við California Collage of Arts and Crafts auk sérnáms í gleri við Orrefors í Svíþjóð og Pilchuck Glass School Í Bandaríkjunum. Eftir sex ára búsetu Í New York á árunum 1984-90, hóf Brynhildur að reka eigin vinnustofu á Íslandi, en glerhlutina vinnur hún að mestu leiti á verkstæðum erlendis. Brynhildur kenndi reglulega glersteypu við Pilchuck Glass School.
Verk Brynhildar er að finna í öllum helstu söfnum landsins og í erlendum söfnum. Útilistaverk eru í m.a. í eigu; Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Akureyrar og Alingsås í Svíþjóð. Hún hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. tvívegis hlotið styrk frá The Pollock-Krasner Foundation.
Dagskrá sýningarinnar:
Opið miðvikudag til sunnudags kl. 14:00 – 18:00
Sögustund alla fimmtudaga kl. 16:00
Sunnudag 18.10. Kl.15:00. Listamannaspjall
Sunnudag 1.11. kl. 15:00. Glerblástur með Carissa Baktay
Laugardag 14.11. kl. 15:00.
Opin vinnustofa á Bakkastöðum 113, með Páli Hjaltasyni artitekt.
Sunnudagur 15.11. kl. 15:00. Lokun.
Opið fyrir hópa eftir samkomulagi í síma 895 9897
Þriðja auga sýningarinnar: Hildigunnur Birgisdóttir
Upplýsingar um listamanninn má finna á : www.brynhildur.com
