brot úr spegli

föstudagur, 21. ágúst 2026
brot úr spegli
Föstudaginn 21. ágúst opnar samsýning meðlima Gilfélagsins í sal Íslenskrar grafíkur og verður opnun klukkan 17:00. Opið verður á Menningarnótt frá klukkan 13:00 - 20:00.
‘brot úr spegli’ er fyrsti liður af tveimur í samstarfi Gilfélagsins á Akureyri og Íslenskrar grafíkur, en Íslensk grafík mun halda sýningu í Deiglunni á Akureyrarvöku í lok ágúst. Þessi sýning er ætluð sem einskonar spegill inn í þá fjölbreyttu senu sem finnst meðal okkar félaga, en félagsmenn telja nú um 200 manns. Sautján félagar munu sýna verk á sýningunni:
Aðalheiður Sigursveinsdóttir
Aðalsteinn Þórsson
Björg Eiríksdóttir
Diana Sus
Elín Berglind Skúladóttir
Elísabet Ásgrímsdóttir
Gillian Pokalo
Guðmundur Ármann Sigurjónsson
Guðrún H. Bjarnadóttir
Guðrún Ósk Stefánsdóttir
Jónborg Sigurðardóttir
Jónína Björg Helgadóttir
Ólafur Sveinsson
Sigurður Mar
Stefan Bessason
Tereza Kocían
Vikar Mar
Gilfélagið var formlega stofnað á Akureyri þann 30. nóvember 1991. Félagið hefur umsjón með listrýminu Deiglunni, þar sem tugir viðburða fara fram ár hvert og rekur auk þess gestavinnustofu í Listagilinu (Gil Artist Residency). Markmið félagsins er að efla menningar- og listalíf á Akureyri, auka tengls almennings við listir og koma á samskiptum norðlenskra listamanna við innlenda og erlenda listamenn.
Við þökkum Íslenskri grafík fyrir að hafa frumkvæði af þessu samstarfi.
Verið velkomin!
