top of page

Borgarbókasafn, Menningarhús Árbæ: Samanbrotið landslag - Sæunn Þorsteinsdóttir

508A4884.JPG

föstudagur, 4. nóvember 2022

Borgarbókasafn, Menningarhús Árbæ: Samanbrotið landslag - Sæunn Þorsteinsdóttir

SAMABROTIÐ LANDSLAG | SÝNING OG SPJALL
Sæunn Þorsteinsdóttir
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ
6. október 2022– 6. janúar 2023

Sunnudaginn 6. nóvember kl. 14-16 spjallar Sæunn Þorsteinsdóttir við gesti um verkin á sýningunni Samanbrotið Landslag sem var opnuð 6. október síðastliðinn.

Á sýningu Sæunnar eru þrívíð listaverk sem hún gerir með því að brjóta saman landakort með kúnstarinnar reglum. Kortin verða þannig að öðru og nýju landslagi heldur en þau áttu að sýna í upphafi.

Landakort draga upp svipbrigði landsins á myndmáli. Kortið er flatt en gefur samt hugmynd um dýpt dala, stærð vatna, lengd fjarða og vekur minningar um eyðifegurð annesja og mikilfengleik fjalla. Uppdrættirnir færa landslag í mælanlegt form með línum og tölum en síðan koma minningar og örnefni og bæta við sögum, lífi og lit.

„Hæðarlínur, tala og nafn færð á pappír og allt í einu get ég haldið á heilu fjalli. Pappírinn er fisléttur en samt finn ég þyngd fjallsins því uppdrátturinn kemur hugmyndinni um fjallið svo vel til skila og í huganum get ég valið um að sjá fjallið fyrir mér blátt í fjarska eða að tylla mér á tindinn og horfa vítt og breitt„ segir Sæunn í hugleiðingu sinni um verkin.

Sæunn lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og tónlist við Tónlistarskólann í Reykjavík. Frá Háskólanum á Akureyri útskrifaðist hún með B.ed gráðu í Mynd- og tónmennt árið 2005. Einnig hefur hún sótt námskeið í sýningarhönnun og sjónlistum af ýmsu tagi á Íslandi, Austurríki, Bandaríkjunum og Japan. Einkasýningar Sæunnar eru sex talsins auk fjölda samsýninga sem hún hefur tekið þátt í.

Heimasíða Sæunnar er www.saeunn.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page