Borgar menning sig?

fimmtudagur, 14. maí 2026
Borgar menning sig?
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026 sendi Bandalag íslenskra listamanna spurningalista um lykilþætti menningarmála til oddvita stjórnmálaflokka víðs vegar um landið. Markmið könnunarinnar var að kalla eftir afstöðu stjórnmálaflokka til menningarmála og varpa ljósi á hvernig þeir ætla að styðja við uppbyggingu öflugra innviða fyrir listir og menningu í sínum sveitarfélögum.
Alls bárust 54 svör frá 23 sveitarfélögum og sýna niðurstöðurnar skýran stuðning við öflugt menningarlíf og mikilvægi lista og menningar fyrir aukin lífsgæði, samfélagsþróun og atvinnulíf sveitarfélaga.
Mikill meirihluti lýsir vilja til að efla stuðning við listafólk og menningarstarf, bæta aðstöðu til listsköpunar og viðburðahalds og tryggja sanngjarna greiðslu fyrir störf listafólks og hönnuða. Þá kemur einnig fram skýr áhersla á að tryggja börnum og ungmennum jafnt aðgengi að listnámi og menningu, styrkja bókasöfn og tónlistarskóla og móta skýra stefnu í menningarmálum.
Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér svörin á heimasíðu BÍL, þar sem sundurliðað er hvaða sveitarfélög og stjórnmálaflokkar tóku þátt í könnuninni, og kynna sér afstöðu þeirra til lista og menningar áður en kosið er.
Síðastliðinn laugardag, 9. maí, stóð BÍL ásamt Samtökum tónlistarskóla í Reykjavík og fulltrúum listdansskóla fyrir opnum kosningafundi í Tjarnarbíói þar sem frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík var boðið til samtals. Fundurinn var afar vel sóttur og skapaðist líflegt og uppbyggilegt samtal um stöðu og framtíð lista, menningar og listmenntunar í borginni.
Eftirtaldir frambjóðendur tóku þátt í umræðunum:
• Einar Sveinbjörn Guðmundsson – Flokkur fólksins í Reykjavík
• Einar Þorsteinsson – Framsókn
• Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir – Góðan daginn (X-G)
• Hlédís Maren Guðmundsdóttir – Miðflokkurinn
• Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns – Píratar
• Skúli Helgason – Samfylkingin
• Rúnar Freyr Gíslason – Sjálfstæðisflokkurinn
• Silja Sóley Birgisdóttir – Sósíalistaflokkur Íslands
• Eyþór Máni Steinarsson – Viðreisn í Reykjavík
• Arna Magnea Danks – Vinstrið
Frambjóðendur höfðu fengið ítarlegan spurningalista fyrir fundinn þar sem meðal annars var spurt um menningarstefnu Reykjavíkurborgar, aðstöðu fyrir listsköpun og viðburðahald, stöðu tónlistarskóla og listdansnáms, stuðning við atvinnudans, mikilvægi bókasafna og sanngjarnar greiðslur til listafólks.
Á fundinum komu fram mikilvægar spurningar frá gestum og hagsmunaaðilum um þátttöku fólks af erlendum uppruna í menningarlífi, aðgengi fatlaðs fólks að listum og menningu og áframhaldandi samstarf Reykjavíkurborgar við Myndlistaskólann í Reykjavík um myndlistarkennslu fyrir börn og ungmenni.
Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá að frambjóðendur svöruðu öllum lykilspurningum játandi og lýstu almennt yfir skýrum vilja til að efla menningu, bæta aðstöðu listafólks og styrkja listmenntun í Reykjavík.
Brot úr fundinum og svör frambjóðenda við JÁ/NEI spurningunum má nálgast á heimasíðu BÍL.
Bandalagið vill færa Friðþjófi Þorsteinssyni kærar þakkir fyrir fundarstjórnina, Snæbirni Brynjarssyni, leikhússtjóra Tjarnarbíó, fyrir að hýsa fundinn, sem og Samtökum tónlistarskóla í Reykjavík og fulltrúum dansskólanna fyrir farsælt samstarf við undirbúning og framkvæmd fundarins.
Við hvetjum listafólk og almenning til að kynna sér stefnumál flokkanna og afstöðu frambjóðenda til lista og menningar áður en gengið er til kosninga, nýta kosningarétt sinn og kjósa með hjartanu.
