top of page

Boðflenna - einkasýning Snorra Ásmundssonar í Listasafni Reykjanesbæjar

508A4884.JPG

fimmtudagur, 11. maí 2023

Boðflenna - einkasýning Snorra Ásmundssonar í Listasafni Reykjanesbæjar

Listasafn Reykjanesbæjar, opnar yfirlitssýningu Snorra Ásmundssonar, Boðflennu, miðvikudaginn 17. maí, kl. 18:00 – 20:00.

Sköpun og gjörðir Snorra verða til þar sem hann stendur og hvíla í honum sjálfum. Þannig er myndsköpun hans ekki skáldskapur eða vel nært „alter egó“. Listamaðurinn er gjörsneiddur leiklistarhæfileikum. Að þessari ástæðu má mögulega halda því fram að Snorri sé stórtækasta lifandi listaverk Íslenskrar listasögu. Í raun er aðeins hægt að bera Snorra saman við bresku listamennina Gilbert og George, sem framkvæma eigið líf sem lifandi skúlptúr þar sem efniviðurinn er breskur persónuleiki og sú táknfræði sem umlykja það auðkenni. Það sem þú sérð er framlag Snorra Ásmundssonar til listarinnar, til íslensku þjóðarinnar og heimsins líka. Æsa Sigurjónsdóttir, segir að listamenn hafi gert til sín miklar kröfur um að vísa þjóðinni leiðina til framtíðar á fyrri hluta tuttugustu aldar. Listamaðurinn átti að vera brautryðjandi, landnámsmaður og sjáandi, andlegur viti sem bryti niður hið gamla og úrelta og benti á hið nýja sem koma skildi (Sigurjónsdóttir. 2011) Segja má að þau gildi sem Æsa, telur upp séu leiðarljós Snorra í lífinu og listinni. Hann hefur unnið sem andlegur leiðbeinandi, sjáandi yogi, brautryðjandi tímatengdrar listar, jafnvígur í söng og píanóleik, listamaður sem leggur sig sannarlega fram við að brjóta niður það gamla og úrelta, á sama tíma og hann er óþreytandi að benda á nýjar leiðir og það sem koma skal.

Hver man eftir forsetaframboðinu 2004? Vinstri Hægri Snú framboðinu? Kattaframboðinu? Besta píanóleikara Evrópu? Fjallkonunni? Listasafn Reykjanesbæjar ætlar að ramma inn og færa persónu- og myndsköpun Snorra í ákveðinn farveg sem mun auka skilning almennings á gagnrýninni samfélagslegri gjörningalist á Íslandi.

Sýningarstjóri Helga Þórsdóttir. Aðstoðarsýningarstjórar Iðunn Jónsdóttir og Helga Arnbjörg Pálsdóttir.

Sýningin Boðflenna mun standa til og með 20. ágúst 2023.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page