top of page

Berglind Svavarsdóttir: Míkrókosmos

508A4884.JPG

fimmtudagur, 29. október 2026

Berglind Svavarsdóttir: Míkrókosmos

Gallerí Fold, Opnun laugaraginn 31. október kl 14:00

Í verkum Berglindar er skyggnst inn litríkan og heillandi heim þar sem sjá má plöntur, skordýr og dýr í mikilli nálægð. Bæði rándýr og bráð notfæra sér list eftirhermunnar til að falla inn í umhverfið, hvort sem það er til að koma andstæðingum sínum í opna skjöldu eða til að flýja þá. Nostursöm verk Berglindar vekja okkur til umhugsunar um líf hins smáa. Berglind dregur fram fegurð skordýranna sem getur vakið vellíðan og forvitni, í stað ógnunar og hræðslu.

„Áhuginn á feluleik dýranna spratt upp af mjög hversdagslegum viðburði. Ég var að vökva plöturnar úti á svölum og sýndist sem snöggvast eitt laufblaðið „ganga“ af stað. Þetta var þá litil engispretta sem féll svo vel inn í umhverfi sitt að það var varla nokkur leið að koma auga á hana þegar hún hélt kyrru fyrir. Upp frá þessu fór ég að veita þessum míkrókosmos meiri athygli, t.d. á ferð minni um fjöll og skóga. Það virðist ríkja alger kyrrð en ef nánar er skoðað sést hvernig allt iðar af lífi. Útlit sem fellur inn í umhverfið og algert hreyfingarleysi verða einskonar huliðshjálmur en oft kemur einhver upp um sig með hreyfingu og þruski og galdurinn hverfur.“

Berglind Svavarsdóttir er fædd í Reykjavík en hefur verið búsett á Ítalíu frá árinu 1996. Hún útskrifaðist frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1996 og var jafnframt í skiptinámi í málun við Accademia di Belle Arti í Bologna, Ítalíu frá 1994–1995. Eftir það lá leiðin til Mílanó þar sem hún lauk BA-gráðu í málun frá Accademia di Belle Arti di Brera árið 2004 og MA-gráðu frá sama skóla árið 2009. Berglind hefur haldið einkasýningar víða og tekið þátt í samsýningum bæði á Íslandi og erlendis. Þetta er önnur einkasýning Berglindar í Gallerí Fold.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page