top of page

BAZAR 50 - flugeldasýning í myndum

508A4884.JPG

miðvikudagur, 26. júlí 2023

BAZAR 50 - flugeldasýning í myndum

Gróskusalur á Garðatorgi í Garðabæ, 28.júlí - 20.ágúst 2023. Opnun er 28.júlí kl.17-22.
Opið: Fimmtudaga og föstudaga milli kl.17-1930 og laugardaga og sunnudaga milli kl.12-17.

Listmálarinn Birgir Rafn Friðriksson - BRF heldur stórsýningu í Gróskusalnum á Garðatorgi í Garðabæ í tilefni 50 ára afmælis hans. Sýninguna kallar hann BAZAR 50 og vísar hún annars vegar til 50 ára afmælisins og hins vegar til þeirrar basar stemmingar sem að hann er að búa til. “Ég sýni yfir 100 verk á þessari sýningu svo það er tjaldað upp úr og niður úr líkt og á salon sýningu. Nema ég ætla að veita 30% afslátt af öllum upphengdum verkum í tilefni afmælisins og það er meira basarlegt en salonlegt. Úrvalið og stærðirnar eru líka margar, þó allt málverk og þorrinn af þeim unninn í olíulit. TIl sýnis og sölu eru verk sem spanna síðasta áratug og einstaka verk sem er enn eldra en það. Mikið til eru verkin máluð á striga en einnig minni verk máluð á olíupappír. Sum eru innrömmuð og önnur eru það bara ekki. Þarna úir hreinlega og grúir öllu saman, pælingum, hugmyndum, tilfinningum, rannsóknum og stúdíum í áferð, lit, tækni og inntaki. Stutt og laggott: Algjör flugeldasýning fyrir augað og ég er viss um að svona sýning hefur ekki ratað áður í Garðabæ og þó víðar væri leitað! Það ætti bara engum að leiðast og allir að finna eitthvað við sitt hæfi og það á góðu verði. Enda ótrúlega margt að sjá og sjón er sögu ríkari”.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page