top of page

Bókmennamerking í Lækjargötu til heiðurs Sigrúnu Eldjárn

508A4884.JPG

fimmtudagur, 7. maí 2026

Bókmennamerking í Lækjargötu til heiðurs Sigrúnu Eldjárn

Á föstudaginn 8. maí kl. 13 fer fram afhjúpun á sérstakri bókmenntamerkingu í Lækjargötu í miðborg Reykjavíkur til heiðurs barnabókahöfundinum Sigrúnu Eldjárn.

Merkingin er í formi sérhannaðs brunnloks í göngustétt sem vísar til verka Sigrúnar og þeirra sterku tengsla sem þau hafa við borgarrýmið og ímyndunarafl barna. Með þessari viðurkenningu er sjónum beint að framlagi hennar til íslenskra barnabókmennta, sem hafa um áratugaskeið skipað mikilvægan sess í menningarlífi þjóðarinnar.

Sigrún Eldjárn hefur skapað sér einstaka stöðu sem rithöfundur og myndhöfundur, og verk hennar hafa haft djúpstæð áhrif á kynslóðir lesenda. Í bókum hennar mætast frásögn, myndlist og leikgleði á hátt sem hefur eflt lestraráhuga barna og leitt þau inn í heim bókmenntanna.

Við athöfnina munu fulltrúar Reykjavíkurborgar segja nokkur orð, auk þess sem fjallað verður stuttlega um verk og áhrif Sigrúnar. Athöfnin fer fram í Lækjargötu og er öllum opin.
Með verkefninu er leitast við að draga fram bókmenntaarf Reykjavíkurborgar í borgarlandinu og skapa nýjan áningarstað sem hvetur til uppgötvunar og samtals um bókmenntir.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page