Auglýst eftir umsóknum um vinnustofudvöl við ISCP í New York
miðvikudagur, 19. apríl 2023
Auglýst eftir umsóknum um vinnustofudvöl við ISCP í New York
Myndlistarmiðstöð auglýsir til umsóknar þriggja mánaða vinnustofudvöl við International Studio & Curatorial Program (ISCP) í New York. Dvölin stendur frá júní – ágúst 2024.
Boðið er upp á rúmgóða einkavinnustofu sem listamaður hefur aðgengi að allan sólarhringinn. Stofunin skipuleggur reglulegar vinnustofuheimsóknir til gestalistamanna frá sýningarstjórum og fagfólki, heimsóknir á söfn, gallerí, sýningastaði og fyrirlestra. Þau sem dvelja hjá ISCP fá aðgang að neti alþjóðlegra listamanna og sýningarstjóra. Dvölin veitir listamönnum sem þar dvelja aðgengi að öflugu, alþjóðlegu tengslaneti; sýningarstjórum, safnafólki, blaðamönnum og öðrum sem starfa innan geirans. Styrkurinn tekur til vinnustofudvalar, en ekki framfærslukostnaðar. Dvölin er fjármögnuð af Myndlistarráði.
Forval á umsóknum er í höndum Myndlistarráðs, en lokaval er í höndum fagnefndar ISCP. Umsóknarfrestur rennur út 8. maí 2023. Sækja má um hér
Vinsamlega sendið eftirfarandi gögn með umsókninni:
Ferilskrá, hámark 5 síður
10 ljósmyndir af verkum eða hlekkir á myndbönd. Taka skal fram titil, ártal, miðil og stærð eða lengd hvers verks. Auk þess má vera stuttur texti með lýsingu á verki.
Ef við á má senda afrit af greinum eða gagnrýni, hámark 10 síður
Ef við á má senda 2-3 afrit af sýningarskám eða útgefnu efni
Meðmælabréf
Auglýst verður aftur eftir umsóknum í mars 2024 fyrir árið 2025.