top of page

Auglýst eftir forstöðumanni Skaftfells

508A4884.JPG

fimmtudagur, 12. október 2023

Auglýst eftir forstöðumanni Skaftfells

Skaftfell, myndlistarmiðstöð Austurlands, auglýsir eftir einbeittum, sjálfstæðum og drífandi forstöðumann með brennandi áhuga á myndlist. Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2023

Skaftfell er ein af elstu og öflugustu stofnunum um nútímamyndlist á lands- byggðinni. Starfsemi Skaftfells er tileinkuð miðlun, viðgangi og framþróun myndlistar á Austurlandi og er þeim markmiðum framfylgt með öflugri og faglegri sýningardagskrá, rekstri gestavinnustofa og fræðslu fyrir börn og fullorðna í landsfjórðungnum

Starfið felur í sér yfirumsjón með sýningardagskrá, almenna stjórnun, daglegan rekstur og ábyrgð á starfsemi miðstöðvarinnar. Nauðsynlegt er að nýr forstöðumaður hafi búsetu á Seyðisfirði.

Hæfniskröfur:
- Góð fagþekking á innlendum sem erlendum myndlistarheimi Reynsla á sviði menningarstjórnunar
- Þekking og reynsla af menningarmálum almennt
- Frjó og skapandi hugsun
- Góð samskiptafærni og forystuhæfileikar
- Vönduð vinnubrögð og skipulagshæfileikar
- Sveigjanleiki og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi

Helstu verkefni eru:
- Umsýsla með fjármálum, samningagerð og almenn stjórnunarstörf. Listræn stefnumótun, áætlanagerð og gerð styrkumsókna.
- Ábyrgð og umsjón með sýningardagskrá og viðburðum, fræðsluverkefnum, starfsemi gestavinnustofa og alþjóðlegum samstarfsverkefnum í samstarfi með starfsfélögum.
- Samstarf við aðrar menningarmiðstöðvar, skólastofnanir og aðra sem vinna að málefnum lista og menningar á landsvísu
- Halda uppi sýnileika stofnunarinnar og virku samtali við samstarfsfólk og stofnanir í nærumhverfi og fjær
- Umsjón með kynningarmálum fyrir miðstöðina og verkefni á hennar vegum. Rekstur og umsýsla með fasteignum miðstöðvarinnar

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum BHM.

Æskilegt er að forstöðumaður geti hafið störf sem fyrst.

Allar frekari upplýsingar veitir Pari Stave, núverandi forstöðumaður, í síma 472 1632 eða á netfanginu skaftfell@skaftfell.is

Umsókn skal fylgja náms- og ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknir berist á netfangið admin@skaftfell.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page