top of page

Auglýsingahlé Billboard:
Opin samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými

508A4884.JPG

fimmtudagur, 3. september 2026

Auglýsingahlé Billboard:
Opin samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými

Billboard efnir til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur.

Dagana 1.–3. janúar 2027 verður Auglýsingahlé á yfir 800 skjáum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið, Reykjanesbæ, Hveragerði, Selfoss, Borgarnes og Búðardal. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir myndlistarmann sem valinn verður úr hópi umsækjenda.

Listamaðurinn fær 1.000.000 kr greiddar fyrir verkið sem verður að sýningartíma loknum gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu Auglýsingahléi Billboard.

Verkið verður bæði sýnt á skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum (6x4m) við götur. Ekki er hægt að sýna hreyfimyndir eða myndskeið en mögulegt er að skipta um mynd á 8 sek. fresti.

Umsækjendur eru beðnir um að senda inn tillögur fyrir kl. 16:00 þann 5. október 2026. Umsóknin skal innihalda stuttan texta um fyrirhugað verk ásamt 1–5 myndum af verkinu (útskýringarmyndir, skissur, ljósmyndir o.s.frv.). Lokaútfærsla verksins verður síðan ákveðin í samstarfi við Y gallery.

Dómnefnd skipuð fulltrúa frá Y gallery, Listasafni Reykjavíkur, Billboard og SÍM fer yfir innsendar tillögur og tilkynnir um val sitt stuttu eftir að umsóknarfresti lýkur.

Á síðasta ári varð Þórdís Erla Zoëga fyrir valinu með verk sitt Sólarhringur. Árið 2022 sýndi Hrafnkell Sigurðsson verkið Upplausn en hann hlaut verðlaun Myndlistarráðs sem Myndlistarmaður ársins fyrir sýninguna.

Umsóknareyðublað má nálgast á vefsíðu Y gallery.





Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page